Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Kolbrúnu féllust hendur yfir lesefni sonar: „Kæri skólastjóri, viltu hjálpa mér að skilja þetta?“

Kolbrún Ósk Skafta­dóttir átti varla til orð á dögunum þegar hún fór að skoða lesefnið sem syni hennar var boðið upp á í grunn­skólanum. Að hennar mati voru allar bækurnar á leslistanum orðnar alltof gamlar og úreltar því að:„- Engin þessara bóka inni­heldur hinsegin foreldri.– Engin þessara bóka inni­heldur manneskju af öðrum húðlit en ferskju­bleikum.– Engin þessara bóka inni­heldur hinsegin eða kynsegin persónu.– Engin þessara bóka inni­heldur stelpu sem aðal­persónu.– Engin þessara bóka inni­heldur einstætt foreldri.– Engin þessara bóka inni­heldur fatlaðan einstakling.– Engin þessara bóka inni­heldur í raun neitt annað en gamlar, úreltar og í versta falli skaðlegar staðalímyndir um lífið.Fjöl­breyti­leikinn er enginn. Ekki neinn sér fjöl­breytninni í lesefni barna sinna eftir að hafa skrifað tölvupóst til skóla­stjóra um málið,“ segir Kolbrún.Kolbrún ákvað að fjalla bæði um málið í færslu á Facebook og senda skóla­stjóranum bréf vegna lesefni sonarins.Hér fyrir neðan má finna brot úr bréfinu:„Í kvöld varð mér aðeins nánar litið á það lesefni sem Róbert hafði komið með heim úr skólanum. Hann er með eftir­farandi þrjár bækur: Doddi fer í siglingu – gefin út árið 1985 (37 ára gömul bók) Skrýtinn dagur hjá Gunnari – gefin út árið 2003 (19 ára gömul bók) Margt skrýtið hjá Gunnari – gefin út árið 2005 (17 ára gömul bók).– Engin þessara bóka inni­heldur hinsegin foreldri.– Engin þessara bóka inni­heldur manneskju af öðrum húðlit en ferskju­bleikum.– Engin þessara bóka inni­heldur hinsegin eða kynsegin persónu.– Engin þessara bóka inni­heldur stelpu sem aðal­persónu.– Engin þessara bóka inni­heldur einstætt foreldri.– Engin þessara bóka inni­heldur fatlaðan einstakling.– Engin þessara bóka inni­heldur í raun neitt annað en gamlar, úreltar og í versta falli skaðlegar staðalímyndir um lífið.Fjöl­breyti­leikinn er enginn. Ekki neinn.Fram til þessa hef ég satt að segja oft velt því einlægt fyrir mér af hverju bækurnar sem Róbert fær með sér heim úr skólanum vekja ekki hjá honum áhuga.Af hverju hann má helst ekki lesa mynda­sögur, þegar hann hefur rosalegan áhuga á þeim og þar er oftar en ekki mjög flottur texti til lestrar. Sem bóksali til tæplega 30 ára, hef ég líka oft velt því fyrir mér hvers vegna bóka­kostur skóla­safnsins hefur ekki verið endurnýjaður oftar en raun ber vitni.Í kvöld sá ég þetta svo allt saman í nýju ljósi.Í kvöld, meðan ég fylgdist með mínum litla lestrar­hesti þræla sér í gegnum bók sem hann var eingöngu að lesa af skyldu, en engri ánægju…bók frá Menntamála­stofnun sem var gefin út árið 2003 (það eru 19 ár síðan!), þá fór ég að tengja hluti saman, sem ég hefði auðvitað átt að gera miklu miklu fyrr.Haturs­orðræða, fordómar, einelti og allt sem um var rætt í fyrir­lestrinum um daginn – Hverjir/hvað eru stærstu áhrifa­valdar þess? Hvaða fordæmi setjum við? Hverju erum við að halda að börnunum okkar? Á hvað leyfum við þeim að horfa? Hvað erum við að láta þau lesa?Ég leitaði einlægt eftir einhverju í þessum þremur bókum sem sýndi ungum lesendum að það er til allskonar annað en hefð­bundnu staðalímyndirnar. Ég fann ekkert. Ekki neitt!Ef við ekki sýnum í gegnum lesefni barna að mannlífið er fjöl­breytt, fólk er allskonar og lífið er sannarlega marg­víslegt, hvernig getum við þá ætlast til þess að þau skilji að ekki á að stríða einhverjum fyrir að eiga hinsegin foreldra?Eins og fram kom hér ofar, er ég bóksali og hef starfað við það í tæp 30 ár. Það voru því hæg heima­tökin þegar ég ákvað að kynna mér þetta aðeins betur. Það gat bara ekki verið að skólanum byðist ekki annað lesefni.Ég setti mig því í samband við bæði höfunda og bóka­útgáfur og viti menn…það er einmitt alls ekki þannig að annað og fjöl­breyttara lesefni sé ekki í boði! Mér er hins vegar tjáð að skólinn forgangs­raði sínu fjármagni ekki á þann hátt að rými sé fyrir nokkra endurnýjun lesefnis. Vonbrigði mín eru gríðarleg ef þetta er í alvöru raunin.Kæri skóla­stjóri, viltu hjálpa mér að skilja þetta?Ég skoðaði efni Menntamála­stofnunar í dag og sé að þar er fullt af frábærum bókum eftir flotta höfunda sem hafa einmitt þessa hluti í huga. Er það virkilega raunin að bóka­kostur skólans sé svo aftarlega á forgangs­lista skóla­stjórnar að sex ára börn hafi nánast ekkert val um lesefni úr samtíma sínum? Ef svo er, þá er kannski ekkert skrítið að þegar bekkjar­félagar Róberts komu í afmæli til hans í vikunni, spurðu þau Áslaugu hver hún eiginlega væri. Þegar svarið var auðvitað „Ég er mamma Róberts“ urðu þau mörg hver bara stein­hissa! Sögðu að ég væri sko mamma hans og skildu ekkert í því að við gætum báðar verið mömmur hans. Einhver börn spurðu svo hvort pabbi hans væri dáinn!Vissulega eru ekki öll þessi börn orðin læs en þó ætla ég að leyfa mér að fullyrða að fjöl­breyttara og nútímalegra lesefni í grunn­skólum hefði hiklaust haft þau áhrif að okkar fjölskyldu­form ætti ekki að koma neinu þessara barna á óvart, eins og það gerði þarna.Mörg þessara barna eiga til dæmis eldri systkini í sama skóla og umræða á heimilum, sem spinnst upp úr lesefni barna, fræðir ekki bara börnin sjálf, heldur heilu fjöl­skyldurnar og samfélagið allt.Ábyrgð og áhrif grunn­skólanna eru því gríðar­lega mikil og ef taka á því alvarlega að uppræta fordóma og fáfræði, þá verður seint klórað yfir metnaðar­leysi í úrvali lesefnis með stöku foreldra­fyrirlestri um fordóma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning