Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Frægir hnakkrífast um móðurmálið: „Þetta eru fárveikar forsendur!“

Frægir rífast nú á samfélags­miðlum yfir kynja­notkun í íslenska tungu­málinu og sitt sýnist hverjum þegar kemur að breytingum á tungu­málinu, sem sífellt háværari krafa er um í samfélaginu. Meðal þeirra sem segja skoðuna sína á málinu eru Egill Helgason sjónvarps­stjarna, Karen Kjartans­dóttir fjölmiðla­kona, Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, og Jakob Bjarnar Grétarson stjörnu­blaðamaður.

Ástæða rifrildisins eru eftir­farandi full­yrðing Höskuldar Þráins­sonar, prófessor emeritus í íslensku nútíma­máli:

Það er ekki móð­ur­mál neins að segja öll vel­komin.“

Höskuldur segir jafnframt að það sé ekki einfalt verk að gera íslenskuna kynhlutlausa og að vert sé að velta því fyrir sér hvort eitthvert gagn sé af því að venja sig á að segja „öll velkomin“ ef karlkynið er út um allt í tungu­málinu í almennri hlut­lausri merkingu.

„Þetta er ekki eins einfalt og stundum er látið í veðri vaka, þetta er alls staðar í tungu­málinu, þessi notkun karl­kynsins,“ segir Höskuldur.

Karen er ekki hrifin af full­yrðingu Höskuldar og fann máli sínu til stuðnins gamlar blaða­greinar og auglýsingar þar sem „öll velkomin“ kemur fyrir. „Prófessor í málfræði heldur því fram að það sé ekki móðurmál neins að segja „öll velkomin“. Forfeður okkar og formæður virðast þó ekki hafa átt í neinum vandræðum með það orðalag. Alls ekki. Þessi íhaldssemi er óttaleg nýjung,“ segir Karen.

Egill telur málið síður en svo einfalt. „Það er svosem einfalt að segja öll velkomin. En að fara djúpt í málið með þessa breytingu – það þarf mikla málverk­fræði til að það takist. En kannski verður það hægt á einhverjum kynslóðum. Ekki einu sinni áköfustu tals­mennirnir (sic!) ráða við þetta. En svo má auðvitað segja að þetta komi gömlum körlum eins og mér ekki við – verðum hvort sem er dauðir,“ segir Egill.

Jakob Bjarnar virðist ekki mjög hrifinn af þeirri hugmynd að breyta málhefðinni þannig að henti öllum kynjum. „Höskuldur vill vara við þeirri áráttu að lesa fordóma í kyn orða. Mér finnst merkilegt hversu auðvelt þessum hópi aktívista, sem eru auðvitað bara meðalskussar í málfræði eins og gengur, veitist að hrifsa til sín kenni­valdið. Einfald­lega á altari einhverra meintra fordóma. Flestir virðast fá hland fyrir fugls­hjartað við það eitt að verða hugsanlega vændir um slíkt,“ segir Jakob.

Atli Steinn Guðmundsson tekur í svipaðan streng. „Ég skil ekki hvað þetta vefst fyrir fólki, ómarkaða kynið í íslensku, þar sem rætt er um óskilgreindan hóp beggja kynna, er karlkyn. Það felur ekki í sér neitt kynja­misrétti, þetta er bara málfræðileg regla, mætti eins vera kvenkyn. Hljómar hryllilega hallæris­lega þegar stjórn­málamenn (fyrir­gefðu, stjórnmála­fólk) eru að slá um sig í annars illa staf­settum blaða­greinum með þessu öll-rugli, þetta er einfald­lega röng málfræði,“ segir Atli ákveðinn.

Þá tekur Egill aftur til máls og ítrekar þá skoðun sína að málið sé ekki einfalt. „Það er nátt­úrlega ekkert mál að segja „öll velkomin“ en þegar við förum dýpra í tungu­málið er meiri vandi á höndum. Ég er ekki að andmæla þessu – bara að benda á að þetta er ekki hægt – ja, nema þá kannski á mjög löngum tíma. En þá gæti líka verið að að áhuginn sé horfinn,“ bendir Egill á.

Eiríkur prófessor telur að ekki verði hægt að forðast þessa breytingu á tungu­málinu. „En ég held að flestum sé ljóst að þetta er ekki einfalt og ég held að engum detti í hug að þetta sé breyting sem hægt sé eða skynsamlegt að keyra í gegn með einhverri stýringu að ofan. Það er hins vegar ljóst að þetta er að breytast og það býsna hratt. Vissulega getur það valdið alls konar ósamræmi – en það er nú ekki eins og tungu­málið sé fullkomlega reglulegt kerfi fyrir,“ segir Eiríkur.

Og Jakob á síðasta orðið. „Það hljóta einhvers konar alhæfingar að búa að baki því að upplifun fólks sé með þeim hætti, vegna einhverra meintra fordóma, að rétt sé að umturna heilu málkerfi og í raun rústa því. Og það sé rétt. Við erum komin býsna langt með að ráðast á saklaus orð og útskúfa þeim úr málinu á forsendum upplifunar einhverra sem byggja á einhverjum ætluðum fordómum. Þetta eru fárveikar forsendur,“ segir Jakob og bætir við:

„Þessar alhæfingar um heilu hópana og upplifun þeirra hljóta eðli máls samkvæmt að vera vafasamar. Og upplifun hópsins, þar er engu hægt að slá föstu. Tökum idjótískt dæmi. 20 manna hópur Hafnfirðinga stígur fram og heldur því fram að Hafnar­fjarðar­brandarar séu niðrandi, það sé þeirra upplifun og hópurinn fer fram á það, í nafni sinnar upplifunar að þetta sé tekið út af sakramentinu. Að Hafnar­fjarðar­brandarar séu sagðir. Er þessi hópur þá, í nafni þess að vera einhvers konar þolendur, þar með komnir með kenni­valdið? Jafnvel þó á daginn komi að Hafnfirðingum upp til hópa þyki þessir brandarar hreint ekkert særandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning