Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Rétttrúnaðarkirkjan harmar afturköllun lóðar á Mýrargötu

„Ef við fengjum byggingar­leyfið á morgun gætum við hafið framkvæmdir á morgun“

Rétttrúnaðarkirkjan sem aldrei reis
Rétt­trún­að­ar­kirkjan sem aldrei reis Hugmynd um útlit kirkj­unnar sem nú hefur svipt bygg­ing­ar­leyfi Mynd: orthodox.is

Rétt­trúnaðar­söfnuðurinn á Íslandi segir allan undir­búning að kirkju­byggingu við Mýrargötu 21–23 vera lokið og fjár­mögnun liggja fyrir. Söfnuðurinn óskar eftir samtali við Reykja­víkurborg eftir að borgarráð ákvað að aftur­kalla lóða­úthlutunina.

Rétt­trúnaðar­söfnuðurinn á Íslandi harmar ákvörðun borgar­ráðs frá 8. október um að aftur­kalla lóða­úthlutun að Mýrargötu 21–23. Í yfir­lýsingu sem send var á fjölmiðla í morgun segir söfnuðurinn að ákvörðunin hafi komið á óvart, enda hafi verið regluleg samskipti við Reykja­víkurborg um verkefnið á undan­förnum árum.

Að sögn safnaðarins er undir­búningi kirkju­byggingarinnar lokið og fjár­mögnun liggur fyrir. Söfnuðurinn segir að einungis byggingar­leyfi vanti til að hægt sé að hefja framkvæmdir.

„Ef við fengjum byggingar­leyfið á morgun gætum við hafið framkvæmdir á morgun,“ segir í yfir­lýsingunni.

Teikningar samþykktar í september

Í yfir­lýsingunni kemur fram að söfnuðurinn hafi um árabil unnið að hönnun kirkjunnar og gerð nauðsynlegra verkfræði­teikninga. Samkvæmt honum voru síðustu teikningarnar samþykktar af Reykja­víkurborg 7. september síðastliðinn og umsóknin hafi verið tekin til afgreiðslu.

Söfnuðurinn segir fyrri tafir ekki hafa stafað af áhuga­leysi. Covid-19-faraldurinn hafi stöðvað vinnuna um langt skeið, auk þess sem hönnuninni hafi verið breytt til að koma til móts við óskir íbúa í nágrenninu. Upphafleg stærð byggingarinnar hafi jafnframt verið minnkuð.

Þá hafi Reykja­víkurborg breytt deili­skipulagi svæðisins nokkrum sinnum frá árinu 2008.

Segja lóðina ekki hafa verið yfirgefna

Söfnuðurinn hafnar því að lóðin hafi verið yfirgefin. Hún hafi verið blessuð af hátt­settum klerkum kirkjunnar að viðstöddum fyrr­verandi forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni.

Samkvæmt yfir­lýsingunni koma meðlimir safnaðarins saman á lóðinni á hverjum sunnudegi til bænahalds í lítilli bráðabirgða­kapellu úr timbri sem helguð er heilögum Nikulási. Söfnuðurinn segir lóðina þegar hafa sérstaka trúarlega merkingu fyrir marga.

Rétt­trúnaðar­söfnuðurinn þjónar fólki af fjöl­breyttum uppruna og segir yfir þúsund trúaða sækja hann á hverju ári. Þar séu meðal annars Íslendingar, Úkraínu­menn, Rússar, Serbar, Grikkir, Rúmenar og fólk frá ýmsum öðrum löndum.

Söfnuðurinn hefur lengi stefnt að því að reisa eigin kirkju í Reykjavík. Í yfir­lýsingunni segir að byggingin eigi ekki aðeins að vera bænahús heldur einnig opinn samkomu­staður fólks af ólíkum uppruna og falleg viðbót við borgar­mynd Vestur­bæjarins.

Óskar eftir samtali við yfirvöld

Söfnuðurinn telur að fara eigi varlega í málið og að mögulegt sé að grípa til vægari úrræða en að aftur­kalla lóðina.

Hann óskar eftir opnu samtali við fulltrúa Reykja­víkurborgar, önnur yfirvöld og alla stjórn­málaflokka með það að markmiði að finna lausn sem geri kleift að hrinda verk­efninu í framkvæmd.

Í yfir­lýsingunni er einnig boðið til samtals um hönnun kirkjunnar og þær áætlanir sem þegar liggja fyrir. Borgar­stjóra, forseta Íslands og fulltrúum allra stjórn­málaflokka er jafnframt boðið að sækja sunnudags­guðs­þjónustu safnaðarins að Öldugötu 44 í Vestur­bænum klukkan 10.

Yfir­lýsinguna undir­ritar Timur Zolotuskiy, sóknar­prestur Rétt­trúnaðar­kirkjunnar á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra