Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Notaði hníf á sjaldgæfan máta

Lögreglumaður að störfum
Lög­reglu­maður að störfum Mynd: Víkingur

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu sinnti fjöl­breyttum verkefnum í gærkvöldi og í nótt. Meðal annars var tilkynnt um hnífaógn, þjófnaði, umferðar­óhöpp og nokkra ökumenn sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.

Lögreglu barst tilkynning um mann með hníf og var hann hand­tekinn á vettvangi. Við nánari athugun kom í ljós að um erlendan ferðamann var að ræða sem hafði verið að tína blóm og notað hnífinn við það. Maðurinn var látinn laus að lokinni skýrslu­töku.

Í öðru tilviki tilkynnti einstaklingur að sér hefði verið ógnað með hníf við strætóskýli. Honum tókst að hlaupa á brott en þegar lögregla kom á vettvang var meintur gerandi farinn. Talið var líklegt að hann hefði farið með strætis­vagni og fannst hann ekki.

Þá var óskað eftir aðstoð vegna umferðar­óhapps þar sem rafhlaupahjóli hafði verið ekið á tvær bifreiðar. Ökumaður hjólsins reyndist undir áhrifum áfengis og var hand­tekinn. Hann var látinn laus að lokinni blóð­sýnatöku.

Nokkrir ökumenn voru jafnframt hand­teknir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Einn þeirra hafði verið sviptur ökuréttindum og annar ók án ökuréttinda. Einnig var tilkynnt um ölvaðan ökumann en lögreglu tókst ekki að hafa uppi á bifreiðinni.

Lögregla sinnti auk þess nokkrum tilkynningum um þjófnaði úr verslunum. Í einu tilviki hljóp meintur gerandi af vettvangi og fannst ekki.

Þá var maður hand­tekinn eftir að hafa ítrekað neitað að hlýða fyrir­mælum lögreglu um að yfirgefa port lögreglu­stöðvar. Hann var vistaður í fanga­klefa vegna rann­sóknar málsins.

Loks sinnti lögregla tilkynningum um ungmenni sem voru sögð ónáða íbúa í stiga­gangi og tónlistar­hávaða í heimahúsi. Í síðarnefnda tilvikinu var húsráð­andi beðinn um að lækka tónlistina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning