Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Stólaárás í miðbænum og eftirför í Grafarvogi

103 mál á borð lögreglu í nótt

Setti allt á annan endann á skemmtistað í 101
Setti allt á annan end­ann á skemmti­stað í 101 Sex gistu fanga­klefa eftir storma­sama nótt Mynd: Lögreglan

Nóttin var annasöm hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu. Samtals voru 103 mál skráð í kerfi lögreglu á tólf tíma tímabili, frá klukkan fimm síðdegis til fimm í morgun. Sex manns gistu fanga­klefa eftir nóttina.

Mikið mæddi á lögreglustöð 1, sem sinnir meðal annars miðbænum. Þar þurftu lögreglu­menn að grípa inn í alvarlegt atvik á skemmtistað í póst­númeri 101, þar sem maður réðst á gesti og lamdi þá með stól. Maðurinn var hand­tekinn og vistaður í fanga­klefa. Skömmu síðar var annar aðili hand­tekinn á skemmtistað í sama póst­númeri vegna líkams­árásar.

Þá var ökumaður stöðvaður í hverfi 105, en sá var undir áhrifum áfengis og fíkniefna, sviptur ökuréttindum og á bifreið án skráningar­merkja. Í póst­númeri 170 voru húsráð­endur kærðir fyrir mikinn partí­hávaða, en lögregla þurfti ítrekað að mæta á staðinn þar sem fyrir­mælum um að lækka var skellt skolla­eyrum við.

Eftirför og árás á lögreglu

Í Grafar­vogi (112) sinnti lögreglustöð 4 dramatískri eftirför. Ökumaður undir áhrifum fíkniefna flúði undan lögreglu en var á endanum króaður af og hand­tekinn. Hann á von á kæru fyrir fjölda umferðar­lagabrota. Farþegi í bílnum var einnig hand­tekinn og vistaður í fanga­klefa eftir að hafa veist að lögreglu­mönnum við skyldu­störf.

Óboðnir gestir og innbrotstilraunir

Á öðrum lögreglu­stöðvum var talsvert rólegra en þó þurfti að leysa úr ýmsum málum. Í Breið­holti (111) var óskað eftir aðstoð vegna gests sem neitaði að yfirgefa íbúðar­húsnæði eftir að hafa verið beðinn um það. Þá var tilkynnt um tilraun til innbrots í húsnæði í Hafnar­firði (220).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum