Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Kröfuganga og samstöðufundur fyrir Palestínu í dag

„Við köllum eftir aðgerðum – ekki fleiri yfir­lýsingum“

Frá fyrri mótmælum
Frá fyrri mót­mælum Gengið verður frá Hlemmi að Aust­ur­velli Mynd: Víkingur

Félagið Ísland-Palestína og BDS Ísland efna til kröfu­göngu frá Hlemmi klukkan 13 í dag og samstöðu­fundar á Austur­velli í kjölfarið. Með aðgerðunum vilja samtökin þrýsta á íslensk stjórn­völd um að grípa til aðgerða vegna ástandsins í Palestínu.

Alþjóðlegt bandalag fyrir Palestínu (Global Alliance for Palestine) hefur boðað til alþjóð­legs aðgerða­dags í dag, 10. október. Samkvæmt frétta­tilkynningu taka hundruð samtaka víða um heim þátt í samræmdum aðgerðum til stuðnings frjálsri Palestínu.

Meðal þátt­takenda eru grasrótar­hreyfingar, stúdenta- og verkalýðs­félög og samtök sem berjast fyrir réttindum Palestínu­manna.

Í tilefni dagsins standa félagið Ísland-Palestína og BDS Ísland fyrir kröfu­göngu frá Hlemmi klukkan 13. Að göngunni lokinni verður haldinn samstöðu­fundur á Austur­velli.

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, fyrr­verandi þingkona og framkvæmda­stjóri Courage International, verður fundar­stjóri. Meðal ræðumanna verður Montaser Dwikat frá Nablus á Vestur­bakkanum og Svava Sigberts­dóttir, einka­þjálfari og stofnandi Viking Method. Páll Óskar Hjálm­týsson tónlistar­maður flytur ræðu og tónlist í lok fundarins.

Krefjast aðgerða íslenskra stjórnvalda

Í frétta­tilkynningunni er lögð áhersla á að íslensk stjórn­völd hafi nýlega verið meðal tólf ríkja sem sendu frá sér yfir­lýsingu um fyrir­hugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtöku­byggðum Ísraela á hernumdum svæðum Palestínu.

Samtökin segja þó ekki hafa komið fram hvaða aðgerðir Ísland hyggist grípa til í fram­haldinu.

„Þann 10. október krefjumst við þess að íslensk stjórn­völd láti verkin tala,“ segir í tilkynningunni.

Þar er einnig vísað til þess að stuðningur almennings við réttindi Palestínu­manna hafi aukist verulega víða um heim frá því að þjóðar­morðið á Gaza hófst haustið 2023. Samtökin telja að aðgerða­leysi stjórnmála­fólks og það sem þau kalla blekkingu um vopnahlé hafi stuðlað að því að hörmungar­ástand haldist á Gaza og Vestur­bakkanum.

Vísa til mikillar eyðileggingar og mannfalls

Í tilkynningunni segja samtökin að að minnsta kosti 73.000 Palestínu­menn hafi verið drepnir á síðustu þremur árum, þar af meira en 18.000 börn. Þau vísa jafnframt til þess að um 70 prósent mann­virkja og bygginga á Gaza hafi skemmst eða verið eyðilögð.

Þar segir jafnframt að raun­verulegur fjöldi látinna kunni að vera mun hærri.

Samtökin vísa einnig til áfram­haldandi árása á Gaza eftir að vopnahlé tók gildi og segja að árásir á sjúkrahús og heilbrigðis­starfsfólk haldi áfram, auk þess sem mannúðar­aðstoð sé hindruð.

Þá lýsa þau áhyggjum af auknu ofbeldi og landráni ísraelskra „land­ræningja“ á hernumdum svæðum á Vestur­bakkanum. Í tilkynningunni er vestræn ríki jafnframt gagnrýnd fyrir aðgerðar­leysi og stuðning við Ísrael.

Ísland-Palestína og BDS Ísland segja að markmiðið með aðgerðunum sé að kalla eftir raun­verulegum viðbrögðum stjórn­valda fremur en yfir­lýsingum.

„Við köllum eftir aðgerðum – ekki fleiri yfir­lýsingum,“ segir að lokum í frétta­tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra