Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Össur mærir Björn Bjarnason: „Gáfaðir menn eru oft djúpir húmoristar í tveggja manna tali“

Björn Bjarnason.
Björn Bjarna­son.

Össur Skarp­héð­ins­son sendir afmæl­is­barni gær­dags­ins kveðju sína á Facebook í morgun en það er eng­inn annar en Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins og mótherji Össurar á þingi til margra ára.

Líf­fræð­ing­ur­inn og fyrrum ráð­herr­ann Össur Skarp­héð­ins­son skrifar skemmti­lega færslu í morgun sem hann kallar „Morg­un­kveðja til Eng­ey­ings“ en til­efnið er átt­ræð­is­af­mæli Björns Bjarna­sonar.

Færslan hefst á eft­ir­far­andi orðum:

„Morg­un­kveðja til Eng­ey­ings

Björn Bjarna­son, vitr­asti maður Eng­eyj­a­rætt­ar­innar, varð átt­ræður í gær. Við háðum marga hildi á Alþingi. Hann var ófyr­ir­leit­inn, orð­hvass, rök­fastur, og í per­sónu­legri við­kynn­ingu miklu skemmti­legri en flestir þekkja. Gáfaðir menn eru oft djúpir húmoristar í tveggja manna tali. Það á Björn sam­eig­in­legt með „his eternal foe“, Ólafi Ragnari Gríms­syni.

Best var sam­starf okkar í Þing­valla­nefnd um 12 ára skeið, þar sem við stóðum saman að marg­vís­legri upp­bygg­ingu, og gegn áformum Fram­sóknar um heimsku­legar bygg­ingar innan þjóð­garðs. Í miðjum slagnum um fjöl­miðla­lögin 2004 org­uðum við hvor á annan í þing­inu um daga en unnum saman um kvöld við að und­ir­búa að koma Þing­völlum á heimsminja­skrá UNESCO. Það tókst á met­tíma og ekki síst að þakka elju hans.“

Össur er síður en svo hættur að mæra Björn í færslu sinni:

„Birni verð ég ævar­andi þakk­látur fyrir góðan skiln­ing á mál­efnum stór­ur­rið­ans, sem á okkar dögum var að deyja út í Þing­valla­vatni. Drengi­leg lið­veisla hans í vernd­ar­að­gerðum fyrir urrið­ann skiptu miklu máli um afdrif hans á úrslita­stundu í sögu stofns­ins. Slíkir hlutir skipta máli, a.m.k. fyrir ræfil minn.“

Að lokum end­ur­birtir Össur blogg­færslu Björns sem fjallar um Össur sjálfan og segir að það muni gleðja afmæl­is­barnið:

„Það gleður mig líka hversu náið Björn fylgist með afskiptum mínum – sem engin eru raunar í dag – og útlegg­ingum á póli­tík. Stundum hefur það orðið honum að yrk­is­efni, og í til­efni af átt­ræð­is­af­mæl­inu end­ur­birti ég hér nýlegan pistil af síð­unni

bjorn.is

þar sem fjallað er um ræfil minn. Ég veit það gleður afmæl­is­barnið, og þarmeð mig.Birni og hans góðu konu, Rut Ing­ólfs­dóttur óska ég til ham­ingju með gær­dag­inn og megi þau lengi lifa góða daga!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið