Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Fékk nóg þegar Ásgeir hækkað vexti: „Launahækkanir standa engan veginn undir hækkun verðlags“

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður VR

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður stétta­félagsins VR, lýsti í gær yfir árangurs­leysi í kjara­viðræðum við Samtök atvinnu­lífsins. Stétta­félagið greinir frá þessu á vef sínum en svo virðist sem framlag seðla­bankastjóra, Ásgeirs Jónssonar, hafi gert útslagð. Í tilkynningu VR segir að með því að hækka stýri­vexti í sex prósent þá hafi Ásgeir í raun gert launa­hækkanir mark­lausar, þar sem fyrirséð er að þær standa varla undir hækkunum verðlags og vaxta.

Tilkynning VR í heild sinni:

VR lýsti í gærkvöldi, fimmtudaginn 24. nóvember 2022, yfir árangurs­leysi í kjara­viðræðum við Samtök atvinnu­lífsins. Stéttar­félögin vísuðu kjara­viðræðum við SA til ríkis­sátta­semjara þann 14. nóvember sl. Viðræður síðan þá hafa snúist um gerð kjara­samnings til skamms tíma með áherslu á launa­liðinn og það markmið að ná niður verðbólgu og lækka vexti.

Viðræður hafa þokast í rétta átt síðustu daga en nú er ljóst að forsendur fyrir áfram­haldandi samtali eru brostnar. Ákvörðun Seðla­banka Íslands um að hækka stýri­vexti í 6%, setti viðræður í uppnám og tilboð SA um launa­hækkanir hingað til standa engan veginn undir hækkunum verðlags og vaxta sem dunið hafa á launa­fólki í landinu. Frekari hækkanir eru nú fyrir­sjáanlegar.

Viðræðu­nefnd VR gat ekki skynjað nokkurn vilja hjá samninga­nefnd SA um að hækka sitt tilboð frá því sem boðið var þegar deilunni var vísað til Ríkis­sátta­semjara og því enginn sjáanlegur tilgangur í því að halda viðræðum áfram að óbreyttu.

Yfir­lýsing um árangurs­leysi viðræðna felur í sér að VR mun nú kynna ákvörðunina fyrir félags­fólki og meta næstu skref. Samkvæmt lögum ber ríkis­sátta­semjara að gera tilraun til að ná sáttum ef annar aðili óskar þess eða sátta­semjari telur það heppilegt. Ríkis­sátta­semjara ber þó ætíð að leita sátta innan 14 sólar­hringa frá síðustu samninga­tilraunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning