Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Vítalía og Arnar versluðu saman í matinn – Dýrasta ást Íslandssögunnar

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

Arnar Grant og Vitalía Lazereva hafa sést saman und­an­farið. Heim­ildir Mannlífs herma að þau hafi verið saman í Krónunni á Hval­eyr­ar­holti í Hafn­ar­firði síð­degis á sunnu­dag að versla í mat­inn. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er vin­skapur Arnars og Vítalíu sterkur. Óljóst er þó hvers eðlis sam­band þeirra er en mikið upp­nám hefur fylgt þeim frá því hún upp­lýsti um meint kyn­ferð­is­legt áreiti í sinn garð. Máli þeirra hefur verið lýst sem dýrasta ást­ar­sam­bandi Íslands­sög­unnar.

Í lok júní bár­ust fregnir bár­ust af því að Arnar og Vítalía höfðu verið kærð til hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir til­raun til fjár­kúg­unar, hót­anir og brot gegn frið­helgi einka­lífs. Kærendur voru Ari Edwald, Hregg­viður Jóns­son og Þórður Már Jóhannes­son.

Upphafið var í byrjun árs þegar Vítalía greindi frá því í hlað­varps­þætt­inum Eigin konur að hún ætl­aði sér að leita réttar síns, eftir að hafa orðið fyrir meintu kyn­ferð­is­of­beldi af hálfu þre­menn­ing­ana. Í sama þætti greindi hún frá ást­ar­sam­bandi sínu við kvæntan mann, Arnar Grant, sem bauð henni í sum­ar­bú­stað þar sem hún sagði meint brot hafa átt sér stað í heitum potti við sum­ar­bú­stað Þórðar Más þar sem fjór­menn­ing­arnir voru naktir ásamt henni.

Vítalía lýsti því einnig í við­tal­inu hvernig Arnar hefði veitt fjöl­miðla­mann­inum Loga Bergmann kyn­ferð­is­legan aðgang að henni í golf­ferð haustið 2021. Uppnám var vegna upp­ljóstran­anna. Logi missti vinn­una eins og Ari Edwald. Þórður Már sagði af sér sem stjórn­ar­for­maður Festis, sem rekur Krónuna. Arnar skildi við konu sína. Þá var það rakið til máls­ins að Eggert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóri Festis, var rek­inn úr starfi. Hann hafði sýnt mál­stað Vítalíu skiln­ing og átt við­ræður við hana.

Rúmu hálfu ári eftir upp­ljóstr­un­ina, í byrjun júlí, steig Arnar loks fram og sagði Vítalíu ekki hafa farið rétt með frá­sögn af Loga. Aðspurður hvers vegna hann hafi þagað yfir þessu í hálft ár, svar­aði Arnar: „Hvar átti ég að byrja til að vinda ofan af þessu? Skaðinn var skeður og ég vildi bara hlífa fjöl­skyld­unni og öðrum. Ég var hræddur við enn meira skít­kast, ásak­an­irnar voru svo þungar að ég átti ekki von á að mér yrði trúað. And­rúms­loftið í sam­fé­lag­inu var ekki vin­veitt og ég vildi bara ekki fara í ein­hvern leðjuslag.“

Ekki liggur fyrir hvað breytt­ist hjá Vítalíu og Arnari. Hann kvaðst í sam­tali við Mannlíf í júní ekki heyrt í Vítalíu lengi. Hvorki náð­ist í Arnar né Vítalíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027