Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

TikTok stjarna kvaddi aðdáendur með myndskeiði: „Háði langa og erfiða baráttu við geðsjúkdóm sinn“

Blessuð sé minning Joe.
Blessuð sé minn­ing Joe. Mynd: Trausti Hafsteinsson

TikTok stjarnan og grín­istinn Joe Muchlinski, sem kallaði sig VonViddy á TikTok, er dáinn, aðeins 32 ára að aldri. Banamein hans er sjálfsvíg.

Fram kemur í frétt E News! að Martha Muchlinski, systir Joe, hafi tilkynnt andlát bróður síns í fyrradag, í myndbandi sem hún birti á TikTok. Segir hún þar að Joe hafi framið sjálfsvíg.

„Ég vil staðfesta það við aðdáendur hans að hann tapaði langri baráttu sinni við geðsjúkdóm og hann framdi sjálfsvíg,“ sagði Martha í mynd­skeiðinu og bætti við: „TikTok skipti miklu máli fyrir hann. Það gaf honum ánægju. Það gaf honum eitthvað til að hlæja að og láta aðra hlæja og hann kunni virkilega að meta það.“ Sagði hún að Joe hefði „háð mjög, mjög langa og hræðilega baráttu við geðsjúkdóm sinn.“ Sagði hún einnig: „Og við getum bara vonað að núna sé hann búinn að finna frið. En ég vildi bara veita aðdáendum VonViddy útskýringu, svo þið vitið hvað gerðist.“

Í mynd­bandinu sagði Martha einnig að fyrsta orð hennar hafi verið Joe. „Hann var stóri bróðir minn, mitt eina systkini og þetta er einn versti dagur lífs míns. Ég veit að fólk hefur haft áhyggjur síðan hann sendi út síðasta mynd­bandið, og það fólk á skilið útskýringu.“

Í téðu myndbandi, hinu síðasta frá Joe, sem hann birti 21. ágúst, fer hann yfir líf sitt og sagði að hann óskaði þess að vera minnst sem „höfund myndbanda sem fékk fólk til að hlæja og höfund tónlistar.“ Aukreitis sagði hann: „Ég vil einnig að mín verði minnst sem sumarbúða­leið­beinanda sem hjálpaði börnum að skapa hamingju­samar minningar. Ég vil ekki að mér verði minnst sem fíkils og alkóhól­ista sem lét fjöl­skyldu sína ganga í gegnum helvíti. En því miður, þá var það líka partur af mér.“

Samfélags­miðla­stjarnan lýsti svo þakklæti sínu til aðdáenda sinna og sagði þeir hefðu skipt hann miklu máli.

„Í heildina átti ég stórkostlegt líf,“ sagði hann að lokum. „Ég fékk að heimsækja hinn enda heimsins og ég hef eignast fullt af vinum úr öllum áttum. Ég hef ekkert til að kvarta yfir og hef ekkert nema ást og frið gagnvart hverju og einu ykkar.“

Kveðju­myndbandið má sjá hér að neðan en viðkvæmir eru varaði við áhorfi.

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent er á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólar­hringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólar­hringinn. Netspjall Heilsu­veru þar sem svarar hjúkrunar­fræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfs­vígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgar­miðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár