Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Jakobína fékk tilhæfulausa rukkun: „Ég stend gersamlega ráðþrota gagnvart þessu

Stellubúð var á Grundarfirði
Stellu­búð var á Grund­ar­firði Mynd: Andrew Mayovskyy

Jakobína trúði vart eigin augum þegar hún fékk rukkun frá STEF árið 2004.

Jakobína Thomsen rak árið 2004 Stellubúð á Grundar­firði. Búðin var opin tvo tíma á virkum dögum og seldi handverks- og gjafavöru. Þegar hún fékk rukkun frá STEF upp á níu þúsund krónur ákvað hún að hætta spila tónlist í búðinni. Sú áætlun hennar gekk þó ekki eftir.

„Ég er enn svo reið eftir að ég talaði við manninn hjá STEF að ég er ekki komin yfir það ennþá,“ sagði Jakobína í viðtalið við DV árið 2004. „Í fyrra vissi ég ekki til þess að maður væri rukkaður fyrir að leika tónlist í búð. En svo fékk ég rukkun á nýjan leik þó svo að ég hafi engin hljóm­flutnings­tæki í búðinni.“

Í framhaldi af því hafði Jakobína samband við STEF til að leita skýringa og talaði við starfs­mann fyrirtæksins. 

„Hann kynnti sig ekki en var bara með skæting. Það eina sem mér datt í hug var að tvisvar hef ég kveikt á grín­útvarpi sem hreyfir varirnar þegar það er í gangi til að sýna viðskipta­vinum. Hann sagði að það væri ekki málið. Svo kveikti ég á perunni,“ en þá hafði Jakobína spilað eigin tónlist sem var á kassettu­tæki í búðinni.

„Þetta er svona létt og þægilegt sjómannalag. Ég samdi textann og Níels lagið. Við tókum það upp í litlu hjóðveri hjá kunningja okkar. Ég söng það sjálf þannig að þú getur ímyndað þér hvers­konar kattargól þetta er. Enda var það bara gert til að menn gætu áttað sig á laglínu og texta. Þetta lag hefur aldrei verið spilað opinber­lega og við bíðum þess en að Lísa Páls­dóttir sendi okkur diskinn aftur því ekki vann lagið,“ en lagið hafði verið sent inn í laga­keppni á RÚV.

„Ég stend gersam­lega ráðþrota gagnvart þessu en hef ekki komið því í verk enn að leita lögfræðings,“ sagði Jakobína í lokin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni