Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Karl Ágúst róast ekkert með aldrinum: „Er að vinna eins og húðarjálkur“

Karl Ágúst Úlfsson, einn ástsælasti leikari, leik­stjóri og rithöfundur þjóðarinnar á afmæli í dag. Alls hefur jörðin snúist 65 sinnum í kringum sólina með Karli Ágústi innanborðs.

Afmælis­barnið hefur glatt þjóðina í áratugi með hnyttni sinni og list. Hvert mannsbarn þekkir eða á að þekkja Lífs-myndirnar, Nýtt Llf, Dalalíf og Löggulíf þar sem Karl Ágúst lék Danna á móti Eggerti Þorleifs­syni sem lék Þór. Þá var hann einn meðlima Spaugs­stofunnar um áraraðir en einnig hefur hann vakið athygli á ritvellinum sem og á leik­sviðinu, bæði sem leikari og leikrita­skáld.

Mannlíf heyrði í honum hljóðið og spurði hann út í afmælis­daginn, hvort hann ætlaði að halda sérstak­lega upp á hann og þá hvernig.

„Nei, ég held ég bíði aðeins með það, það er svo mikið að gera. Ég ætla samt að skjótast í kaffi og drekka kaffi­bolla með dætrum mínum eftir smá. En svo held ég bara áfram að vinna.“

En hvað er Karl Ágúst að vinna við núna?

„Ég er að æfa leikverk, Beðið eftir Godot sem að Steinn Einarsson er að leikstýra. Það verður leiklesið í Borgar­leikhúsinu í byrjun desember. Og svo er ég að vinna eins og … ég veit ekki hvaða orð ég þori að nota, vinna eins og húðar­jálkur í að klára þýðingu mína á Hvað sem þið viljið eftir Shakespeare, sem er að fara í æfingu á þriðjudaginn kemur. Þannig að ég þarf virkilega að halda vel á spöðunum svo ég geti gert þær breytingar sem ég var búinn að ákveða í vinnu­stofu sem við vorum með í haust.“

„Þannig að þú ert ekkert að róast með aldrinum?“

„Ég er alltaf að reyna það,“ svaraði Karl Ágúst og skellti upp úr. „Ég hef ekki náð umtals­verðum árangri ennþá.“

En afmælis­barnið er með fleira á prjónunum:

„Síðan er ég alltaf að bíða eftir því að komast í rithöfunda­stólinn og komið mér almennilega fyrir í honum af því að ég þarf alltaf að vera að sinna einhverju öðru. Það er kannski ástæðan fyrir því að ég ákvað að kveðja leikara­ferilinn með sýningunni á Fíflinu. Það er eitt og annað sem ég þarf að ná að ljúka sem höfundur og vil endilega ná að klára á meðan ég hef enn heilsu til.“

Þess má geta að einungis er ein leik­sýning eftir af Fíflinu en hún verður á laugar­daginn næst­komandi og er sýnd í Tjarnar­bíói.

Mannlíf óskar Karli Ágústi innilega til hamingju með afmælið!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning