Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

„Ef fyrirtæki upplýsir ekki um skrópgjald er því ekki stætt á að innheimta gjaldið“

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.
Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.

Formaður Neytenda­samtakanna segir samtökin skoða hvert tilfelli fyrir sig, sem berst þeim vegna svokallaðra skróp­gjalda þjónustu­aðila. Skróp viðskipta­vina eru sögð stærsta vanda­málið í þjónustu, en mikið tekjutap sé vegna þeirra á ári hverju. Margir þjónustu­aðilar rukka því skróp­gjöld, tilkynni viðskipta­vinir ekki um forföll tímanlega. Mikilvægt er að sanngirni sé gætt beggja vegna borðsins.

Rukkaður um skrópgjald án skýringa

Í frétt sem birtist í gær var sagt frá manni sem var rukkaður um skróp­gjald vegna tíma sem barn hans átti á snyrti­stofu. Reikningnum fylgdu hins vegar engar skýringar og maðurinn varð að afla sér upplýsinga sjálfur. Auk þess var reikningurinn dagsettur fjóra mánuði aftur í tímann. Maðurinn segir líklegt að mistök hafi verið gerð, þar sem barn hans hafi sannarlega nýtt tímann. Hins vegar var hann gagn­rýninn á upplýsinga­leysið og velti því í fram­haldinu upp hvort hver sem er gæti sent reikning á hvern sem honum hugnaðist, án nokkurs rökstuðnings.

Hann velti einnig fyrir sér skróp­gjöldum í lagalegu tilliti; hvort tíma­pantanir væru bindandi viðskipta­samningar og hvort um lögmæta viðskipta­hætti væri að ræða.

Verða að upplýsa um skrópgjald

Breki Karlsson, formaður Neytenda­samtakanna, segir í samtali við Mannlíf að í raun sé ekki hægt að setja út á skróp­gjöld sem slík. „Það er eðlilegt að fyrirtæki reyni að tryggja að tímar séu nýttir og við vitum að skróp­gjöld tíðkast víða. Ef hins vegar fyrirtæki upplýsir ekki um skróp­gjald er því ekki stætt á að innheimta gjaldið.“

Mörg fyrirtæki krefjast þess að viðskipta­vinir afbóki tíma ekki seinna en með sólar­hrings fyrirvara. Þótt það sé ef til vill eðlilegt í mörgum tilvikum er það ekki alltaf raunhæft. Ýmislegt óvænt getur komið upp á, til að mynda veikindi.

Aðspurður hvernig þessar kröfur og tíma­ramminn horfi við honum segir Breki að vissulega geti verið tilfelli þar sem fyrirtæki gangi of langt, og stundum megi nýta tímana fyrir fólk á biðlista, til að mynda á snyrti­stofum, hjá tann­læknum, sjúkra­þjálfurum og á nudd­stofum.

„Ef fyrirtæki nær að nýta tímann væri óeðlilegt að innheimta líka skróp­gjald. Þá finnst okkur líka skipta máli hvort um er að ræða óvænt veikindi sem upplýst er um fyrirfram eða hvort neytandi einfald­lega mæti ekki án nokkurra skýringa.

Að þessu sögðu þá skoðum við hvert tilfelli fyrir sig, svo sem hvort gjaldið sé óeðlilega hátt, hversu snemma er látið vita um forföll og hvort neytandi hafi verið upplýstur um skróp­gjald.“

Þegar blaða­maður spyr Breka um kröfur í netbanka, líkt og þá sem maðurinn lýsti, segir hann að í raun sé ekki hægt að koma í veg fyrir slíkt „ef fyrir­tækið telur sig eiga kröfu á neytandann.“ Hann tekur þó fram að neytendur eigi alltaf rétt á því að vita fyrir hvað sé rukkað.

„Hins vegar er skrýtið að reikningurinn hafi farið á föðurinn án þess að hann hafi vitað af því, þar sem ekki er hægt að stofna kröfu í heima­banka nema kennitala liggi fyrir. Þá er ekki hægt að stofna kröfu á ólögráða börn,“ segir Breki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið