Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Hafdís lýsir hryllingi heilbrigðiskerfisins: „Svona menn eigi að taka eina vakt á bráðamóttöku“

„Arna Guðmunds­dóttir, formaður Lækna­félags Reykja­víkur, segir að við búum við afar gott heilbrigðis­kerfi á Íslandi og eftir því sem efnahagur okkar batnaði þá náðum við að halda heilbrigðis­kerfinu á pari við það besta í heimi! Nei mig langar að æla!“

Þetta segir Hafdís Björg Kristjáns­dóttir, einka­þjálfari og marg­faldur Íslands­meistari í fitness, í færslu á Facebook sem vakið hefur athygli og hún hefur gefið Mannlífi góðfúslegt leyfi til að vitna í. Hún segir að reynsla sín af heilbrigðis­kerfinu sé einfald­lega hræðileg. Starfs­fólk geri sitt allra best við hörmulegar aðstæður. Aðstæður sem sé einfald­lega ekki hægt að bjóða Íslendingum upp á.

Hafdís Björg Krist­jáns­dóttir.

Hafdís hvetur þá sem segja heilbrigðis­kerfið gott að prófa að taka eina vakt á Land­spítalanum. „Mér finnst að svona menn eigi að taka eina helgar­vakt niðri á bráða­móttöku og segja okkur síðan hversu dramatísk við erum að tala niður heilbrigðis­kerfið okkar, því það sé með því besta í heiminum,“ segir Hafdís.

Hún segist yfirleitt fá svipaðar móttökur. „Nú er ég búin að vera inn og út af spítalanum síðan í byrjun maí og hafa veikindin mín snar­versnað síðustu þrjár vikur. Þar sem lítið er um pláss og mannskap upp á spítala hefur rútínan verið að verkja­stilla mig og senda mig heim. Morfín og parkodin forte er nestið mitt heim og virðist enginn spá í fram­haldinu eða afleiðingunum á þeim viðbjóð!,“ segir Hafdís.

Hún segist ekkert þrá meira en að losna undan verkjum. „Ég viðurkenni það að eftir þriggja vikna verkja­köst er andlega hliðin í molum og eina sem ég þrái er verkja­laus dagur… Ég hef alltaf reynt að halda mig frá verkja­lyfjum en það er margt sem breytist hjá manni í svona veikindum. Ég átti nokkuð góða og verkja­minni helgi og fannst mér tilvalið að fullnýta helgina og eyða henni með vinkonum mínum og vinum sem ég fékk nú heldur betur í andlitið,“ segir Hafdís.

„Sjónin hvarf, ég stóð ekki í fæturnar vegna skjálfta og beið eftir að ég myndi líða útaf! Verkirnir helltust yfir mig, blóð­þrýstingurinn rauk upp þrátt fyrir tvö blóðþrýstingslyf og var ekkert annað í stöðunni en að hringja á sjúkrabíl.“

Hafdís segir að eina sem hægt var að bjóða henni var að leggjast í hæginda­stól. „Sjúkra­bílinn kemur og er mér skutlað upp á bráða­móttöku sem var yfirfull af sjúklingum og var mér komið fyrir í lazyboy fram á gangi sem var yfir­fullur af sjúklingum. Þar sat ég hágrátandi enda hræðslan og uppgjöfin búin að ná yfirhönd. Eftir tvo og hálfan tíma kemur síðan hjúkrunar­fræðingur og læknir að skoða mig, ég fer í blóð­prufur og þau mæla blóð­þrýstinginn sem er ennþá töluvert hár og er ég greind með kristala flökkt eða þeim fannst það vera eina skýringin fyrir sjón­truflunum og svima og er ég enn og aftur send heim,“ segir Hafdís.

„Heilbrigðis­kerfið á Íslandi er hræðilegt og aðstæður niðra spítala eru ömurlegar!! Starfs­fólkið er allt að gera sitt besta en það er takmarkað sem þau geta gert þegar að aðstæður eru eins og þær eru! Nú er það bara í mínum höndum að finna út úr þessu og leita mér aðstoðar þar sem heilbrigðis­kerfið okkar sér ekki um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Viðbragðsaðilar voru sendir á vettvang
Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá