Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Þreytt á biðinni og fór erlendis – ef þetta væri karllægur sjúkdómur væri hann tekinn fastari tökum

Natalia Olender Mynd/Skjáskot Visir
Natalia Olender Mynd/Skjáskot Visir

Samtök um Endómetríósu á Íslandi lýstu ánægju sinni vegna aukinnar samstöðu við málstaðinn á facebook síðu sinni í dag.

„Samstaðan undan­farnar vikur er búin að vera ótrúleg. Krafturinn í ykkur gefur okkur ólýsanlegan styrk til þess að fá fram okkar áherslu­málum.

Brettum upp ermarnar og höldum áfram. Þetta er ekki búið en við erum að knýja áfram breytingar, hænuskref fyrir hænuskref. “

Endóvika samtak­anna verður haldin í næsta mánuði og þemað í ár er endómetríósa og atvinnu­lífið.

„Þemað í ár er gríðar­lega mikilvægt en það snýr að endómetríósu og atvinnu­lífinu. Á næstu dögum munum við segja ykkur betur frá fyrir­komulagi vikunnar,“ segir á síðu samtak­anna.

Þetta er bókstaflega orðið að einu æxli

Reynslu­sögur frá fólki með sjúk­dóminn eru margar. Í vikunni kom Natalia Olender fram í viðtali á Stöð 2 og lýsti sinni baráttu við sjúk­dóminn.

Natalia Olender er 24 ára var fyrst lögð inn á sjúkrahús vegna endómetríósu-tengdra verkja fyrir um tveimur árum. Hún fékk morfín í æð og loks komu miklir samgróningar í legi í ljós. Natalia hefur beðið í eitt og hálft ár eftir aðgerð vegna endómetríósu og liðið miklar kvalir og þarf nú að greiða eina og hálfa milljón króna fyrir aðgerð í Póllandi. Hún fær ekki greitt frá Sjúkra­tryggingum þar sem aðgerðin verður gerð á einka­stofu en pólskir sérfræðingar réðu henni eindregið frá því að fara á ríkis­spítala.

„Vinstri eggja­stokkurinn minn og ristillinn, þetta er bókstaf­lega orðið að einu svona æxli,“ segir Natalia.

Eftir ítrekaðar innlagnir til viðbótar var henni á endanum vísað til læknis í endómetríósu­teymi Land­spítala.

„Og hún vildi fá mig í aðgerð innan tveggja mánaða og nú eru liðin næstum tvö ár síðan þetta var og ég er enn bara að bíða,“ segir Natalia.

Móðir Nataliu fékk á endanum nóg. Hún er pólsk og fór að spyrjast fyrir um möguleika á aðgerð fyrir Nataliu úti í Póllandi – og þær fundu strax álitlega klíník. Þeim var þó þá strax gert ljóst að Sjúkra­tryggingar myndu ekki taka þátt í kostnaði við aðgerð þar, þar sem klíníkin er einka­rekin. Þær hafi því kannað möguleika á aðgerð í opinbera kerfinu.

„Mamma hringir í örugglega svona tuttugu lækna og þeir segja bara allir: ekki fara með dóttur þína á ríkis­rekna stofu því hún fær ekki sömu aðgerð og hún mun fá hjá sérfræðingi.“

Lang­þreytt á biðinni og með þungar áhyggjur af eigin heilsu ákvað Natalia að fara í aðgerð hjá klíníkinni, sem hún segir að muni kosta sig alls um eina og hálfa milljón króna. Hún hefur nú þegar farið utan tvisvar í skoðun en aðgerðin verður gerð eftir þrjár vikur.

„Það erfiðasta er hvað maður fær litla hjálp og bara hvað Sjúkra­tryggingar Íslands vilja einhvern veginn ekki svara mér og maður finnur bara fyrir miklum fordómum. Og þetta er svo skrýtið, maður er bara orðinn vanur verkjum. Ekki einu sinni kærastinn minn veit hversu margar verkja­töflur ég tek á viku.“

1 af hverjum 10 sem fæðast í kvenmannslíkama með sjúkdóminn

Endómetríósa er krónískur, fjölkerfa og fjölgena sjúdómur sem veldur mismiklum einkennum og hefur mismikil áhrif á daglega líf fólks með sjúk­dóminn.Endómetríósa leggst á 1 af hverjum 10 einstaklingum sem fæðast í kven­mannslíkama.

Algeng einkenni endómetríósu eru:

  • Sársauki: í kviðar­holi, við blæðingar (mikill), fyrir blæðingar, við egglos
  • Óeðlilegar blæðingar: langar, miklar, óreglulegar, með brúnni útferð fyrir og eftir, milli­blæðingar
  • Verkir: við blæðingar eða egglos í mjóbaki eða niður eftir fæti, í kviðar­holi milli blæðinga, við eða eftir kynlíf, tendir þvag­blöðru, tengdir ristli eða þörmum
  • Í meltingar­vegi: hægða­tregða, niður­gangur, uppblásinn magi, ógleði, uppköst
  • Ófrjósemi og erfið­leikar: við að verða barns­hafandi
  • Síþreyta
  • Stundum eru einstaklingar einkenna­lausir eða einkenna­litlir og greinast fyrst þegar um önnur heilsu­vandamál er að ræða, t.d. ófrjósemi.

Talið er að 2,5 milljón franskra kvenna þjáist af sjúkdóminum

Emmanuel Macron, forseti Frakk­lands, ávarpaði þjóðina nú á dögunum um stöðu kvenna með endómetríósu.

Í yfir­lýsingunni hans kveðst franska ríkið ætla leggja meira fjármagn í að rannsaka sjúk­dóminn og orsök hans, bæta þjónustu og vekja enn frekari athygli á honum. Hann nefnir líka að Frakkland hafi allt til brunns að bera til þess að vera leiðandi í rann­sóknum á endómetríósu en talið er að 2,5 milljón franskra kvenna þjáist af endómetríósu.

Á íslandi er ekki stórt teymi sem heldur utan um þennan sjúkdóm og hefur Jón Ívar Einarsson, endómetríósu sérfræðingur vakið athylgi á stöðunni á Ísland. Jón kom í viðtal í útvarps­þættinum Bítið á Bylgjunni og sagði:

„Það er ákveðinn halli í rann­sóknum á endómetríósu, varðandi fjármuni og hversu mikið púður hefur verið veitt í þetta. Maður veltir fyrir sér ef þetta væri karllægur sjúkdómur hvort þetta hefði verið tekið fastari tökum.“

Eins og fyrr segir virðist samstaðan í samfélaginu vegna sjúk­dómsins hafa aukist, en mikil spenna er um næstu viðburði samtak­anna:

„Smá teaser því við erum að tryllast úr spenningi!

Hvað? Ráðstefna

Hvenær? 28. mars

Hvar? Hilton/Streymi

Hverjir? @dr.gabrielmitroi @extrapelvicnotrare & fleira frábært fagfólk.

Miðasala auglýst bráðlega & sérkjör fyrir félags­fólk samtak­anna [email protected] “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra