Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Björgvin Páll hlaut titilinn „SMILER haust 2022“: „Björgvin Páll er frábær fyrirmynd“

Björgvin að pósa með smiler.
Björgvin að pósa með smiler.

Björgvin Páll Gústavsson hand­knattleiks­maður var heiðraður sem SMILER hausts 2022 fyrir að vera flott fyrirmynd. Björgvin sem upplifði erfiða tíma í æsku vegna kvíða, hefur notað þá reynslu til að leiðbeina og styrkja börn og unglinga. Um tíma var hann vistaður á Bugl; barna- og unglinga­geðdeild og þekkir það að missa fótfestu og upplifa sig vera lítils virði. Bók Björgvins Páls Án filters lýsir reynslu hans og bjarg­ráðum og nú er komin út bók hans Barn verður forseti. Að breyta erfiðri reynslu í gjöf fyrir sjálfan sig og aðra vakti athygli og varð til þess að hann fékk heiðurs­titilinn SMILER hausts 2022. Björgvin Páll er nú á meðal fjölda annarra íslendinga sem hafa hlotið þann titil og má sjá á heima­síðunni www.smiler.is.

Björgvin með heið­ur­skjal.

SMILER – hljóðfæri gleðinnar, er merkis­gripur í formi hálsmens og tilgangur hans er að minna á að við erum máttugir skaparar með getu til að skapa okkur gott líf – óháð ytri skilyrðum og reynslu. SMILER er líka hvatning til að fylgja draumum okkar – flest er jú mögulegt! Ákveðið hlutfall af sölu gripsins rennur ætíð til mannræktar­samtaka og nú styrkir SMILER hjálpar­línu Góðvildar sem eru félaga­samtök sem styðja við fjöl­skyldur lang­veikra barna.

Björgvin Páll og Gegga

Helga Birgis­dóttir – Gegga, er skapari SMILER ásamt því að vera hjúkrunar­fræðingur, ljósmóðir, myndlistar­kona og meðferðar­aðili. Hún segir ótækt að ungu fólki líði það illa að þau sjái oft enga lausn nema yfirgefa þessa jörð. „Við gröfum okkar eigin gröf þegar við gleymum að næra andann og heilbrigð samskipti. Þegar við einblínum á álit annarra þá fylgir því óheilbrigð samkeppni og streita – og allir tapa. Kærleikur og mennska ættu aldrei að víkja fyrir ótta og græðgi. Björgvin Páll er frábær fyrirmynd í að sýna hvernig viðhorf okkar skiptir öllu!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning