Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Rugl að hafa áhyggjur af kolefnisspori: „Öll áhersla á einstaklingsábyrgð sé hin mesta vitleysa“

Skjáskot – Youtube
Skjáskot – Youtube

„Ég er svo hugsi yfir öllum þeim aðgerðum sem ég tek til að draga úr kolefnis­sporinu mínu. Ég borða ekki kjöt, reyni að kaupa sem minnst af plasti og fötum, nota taubleyjur til skiptis við einnota á barnið mitt, kaupi notuð föt, flokka allt, endurnýti óþolandi mikið osfrv. En svo fá milljarðamæringar, verksmiðjur og stór­fyrirtæki að gera það sem þau vilja og kolefnis­sporið mitt bliknar í saman­burði. Af hverju er ég að þessu? Hvaða áhrif hef ég í stóra samhenginu? Skiptir þetta einhverju máli?“

Þetta skrifar Elín nokkur á Twitter en skrif hennar hafa vakið athygli og hafa margir svarað þeim. Þar á meðal er Ágústa Lofts­dóttir, sérfræðingur í eldsneytis­málum og vistvænni orku, en hún segir að öll áhersla á einstaklings­ábyrgð í umhverfis­málum sé þvæla.

Ágústa skrifar á Twitter: „Þetta sem Elín segir er m.a. ástæðan fyrir því að ég (sem sérfræðingur í orku­skiptum, loftslags­málum og stefnu­mótun tengdum þeim) er hörð á því að öll áhersla á “personal responsibility” sé hin mesta vitleysa. Lof mér aðeins að útskýra nánar.“

Gott dæmi um þetta séu rafbílar. „Tökum rafbíla sem dæmi. Það að fólk vilji gera vel fyrir umhverfið er eitt. En að vilja/geta borgað 2-10 milljónum hærra verð fyrir bíl sem gerir minna en sambærilegur bensín­bíll er fráleit krafa að leggja á fólk. Enda fór rafbíla­væðing ekki af stað fyrr en með skatta­lækkunum,“ segir Ágústa.

Annað dæmi sé endur­vinnsla plast. „Olíu­fram­leiðendur hafa barist fyrir því að fólk þurfi að endur­vinna plast. Sem hljómar undarlega þar til man gerir sér grein fyrir því að hin leiðin er að plast­fram­leiðendur – þ.e. olíu­félögin – sjái um endur­vinnsluna. Endur­vinnsla plasts væri með öðru sniði ef sú skylda hvíldi á fram­leiðendum að sjá til þess að plastið skilaði sér í endur­vinnslu! Plast væri bæði dýrara, líklega með skila­gjaldi, og næstum örugglega mun minna notað,“ segir Ágústa.

Ágústa segir þetta útskýra margt. „Og þar liggur auðvitað hundurinn grafinn. Losun er auðlind sem hægt er að græða óhemju mikið á og kostar (hingað til) ekki neitt. Fundið fé! Þetta kerfis­læga misræmi í verðgildi auðlindarinnar, kostnaði við notkun hennar (þ.e. skaðanum sem losunin veldur) og gjaldinu (kr. 0.-) sem er tekið fyrir notkunina af þeim sem græða hvað mest verður að leiðrétta og Elín, sama hvað hún vill vel, hefur ekki bolmagn til þess.“

Hún segir að betri leið en sú sem Elín fór væri að þrýsta á stjórn­völd. „Þetta verður að leið­réttast á ríkis­stjórnar- og alþjóða­samninga­leveli. En það þýðir ekki að eðlileg og skiljanleg frústrerasjón Elínar sé gagnslaus. Þvert á móti. Hún er beinlínis vopn í barátt­unni. Við eigum að taka hana beint til þing­mannana okkar og benda þeim á hvað við höfum verið að gera og þrýsta á þá að gera betur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið