Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Harrý Bretaprins er æfur út í Donald Trump

„Hefur nokkur verið fáfróðari í sögu Banda­ríkjanna?“

Harrý Bretaprins
Harrý Breta­prins Prinsinn umdeildi er afar ósáttur við Trump Mynd: AFP

Harrý Breta­prins er meðal þeirra sem er æfur út í Bandaríkja­forseta vegna ummæla sem hann lét falla í viðtali við Fox News.

Donald Trump segir að Banda­ríkin hafi aldrei þurft á hjálp Breta að halda í stríðinu í Afganistan. Ummælin lét hann falla í viðtali við Fox News á fimmtudag, þar sem hann sagði jafnframt að hann treysti því ekki að NATO myndi „vera til staðar“ ef Banda­ríkin þyrftu á varnar­samstarfinu að halda.

Á sama tíma fullyrti Trump að Banda­ríkin hefðu aldrei þurft hernaðar­aðstoð frá neinu NATO-ríki.

„Þeir segja að þeir hafi sent hermenn til Afganistan. Það gerðu þeir, þeir héldu sig aðeins aftar, aðeins fyrir aftan víglínuna,“ sagði forsetinn í viðtalinu.

Ummælin hafa vakið mikla reiði meðal stjórn­valda og samtaka fyrr­verandi hermanna, einkum í Bretlandi, sem sendi fjölmennt herlið til stuðnings Banda­ríkjunum í stríðinu í Afganistan. Alls féllu 457 breskir hermenn í aðgerðunum.

Keir Starmer: „Móðgandi og viðbjóðsleg ummæli“

Forsætis­ráðherra Bretlands, Keir Starmer, sagði í gær að orð Trumps væru „móðgandi“ og „hreint út sagt viðbjóðsleg“.

„Ég er ekki hissa á því að þau hafi valdið miklum sársauka hjá ástvinum þeirra sem féllu eða slösuðust,“ sagði Starmer í samtali við Sky News og bætti við að hann teldi Trump eiga að biðjast afsökunar.

Stuðnings­maður Trumps, Nigel Farage, leiðtogi hægri­öfga­flokksins Reform UK, gagnrýndi einnig forsetann.

„Donald Trump hefur rangt fyrir sér. Fyrir 20 árum börðust vopnaðar sveitir okkar hugrakkar hlið við hlið með Banda­ríkjunum í Afganistan,“ skrifaði Farage á X.

Harrý Breta­prins, sem sjálfur barðist í Afganistan, sagði í yfir­lýsingu að fórnir Breta ættu skilið að vera ræddar „af virðingu“.

„Ég þjónaði þar. Ég eignaðist vini fyrir lífstíð þar. Og ég missti vini þar,“ skrifaði hann og bætti við að hann teldi Trump skulda afsökunar­beiðni.

Gagnrýni víða um Evrópu

Gagnrýnin hefur einnig breiðst út utan Bretlands­eyja. Danski þing­maðurinn Rasmus Jarlov, formaður varnarmála­nefndar danska þingsins, svaraði Trump með myndbandi af dönskum hermönnum í bardögum gegn Talibönum í Afganistan.

Danmörk missti 44 hermenn í stríðinu, sem er eitt hæsta hlutfall mannfalls miðað við íbúa­fjölda meðal NATO-ríkja sem tóku þátt í aðgerðinni.

„Hefur nokkur verið fáfróðari í sögu Banda­ríkjanna?“ skrifaði Jarlov á X.

Forsætis­ráðherra Póllands, Donald Tusk, gagnrýndi einnig ummæli Trumps.

„22. desember 2011 var ég viðstaddur kveðju­athöfn fyrir fimm fallna pólska hermenn í Ghazni í Afganistan. Bandarískir liðs­foringjar sem voru með mér þá sögðu að Banda­ríkin myndu aldrei gleyma pólsku hetjunum,“ skrifaði Tusk á X.

„Kannski geta þeir minnt Trump forseta á þá staðreynd,“ bætti hann við.

Margir stjórn­málamenn og aðstand­endur fallinna hermanna þrýsta nú á Keir Starmer að krefjast afsökunar­beiðni. Í upptöku, þar sem hann hljómar „sannarlega reiður“ að sögn BBC, segir hann:

„Ummæli Trump forseta eru móðgandi og hreint út sagt viðbjóðsleg. Hefði ég sagt eitthvað álíka, hefði ég hiklaust beðist afsökunar.“

Hvíta húsið hefur hins vegar svarað gagn­rýninni með því að segja að „Trump forseti hefur rétt fyrir sér“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Áhorfandi sagði táningsstúlku sem dæmdi leikinn að drepa sig.
Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku