Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Afbökuð jólakúla með fleiri en eitt hlutverk

Rit­stjórn Húsa og híbýla hefur í gegnum tíð­ina fengið skap­andi fólk til að hanna ein­hvers konar „jólakúlu“ eða skraut á tré. Hér sýna þrír hönn­uðir sína útgáfu. Karitas Möller, sem hefur numið arki­tektúr við Arki­tekta­skól­anum í Kaup­manna­höfn, end­ur­nýtti efni til að búa til sína útgáfu af jólakúlu.

Hver er hug­myndin að baki hönn­un­inni?

„Hug­myndin var í fyrsta lagi að end­ur­nýta efni sem hefur fallið til við fram­leiðslu á öðru sem ann­ars færi for­görðum. Í öðru lagi að afbaka „jólakúl­una“ og gefa henni nýtt form og hlut­verk, einnig utan jóla­há­tíð­ar­innar. Að hún hefði fleiri en eitt hlut­verk og ólíka mögu­leika á upp­still­ingu og stað­setn­ingu,“ segir Karitas.

Hvaða leiðir voru farnar hvað varðar efn­is­val og form­fræði?

„Ég fór til þeirra í Orgus, en þau eru sér­fræð­ingar í akrýl­steini við smíði á borð­plötum, inn­rétt­ingum og fleiru. Ég fékk hjá þeim nokkrar afgangs­plötur sem hafa fallið til við fram­leiðsl­una. Það vildi svo til að plöt­urnar sem ég fékk voru í mjög fal­legum litum og pössuðu vel saman. Einnig finnst mér áferðin og munstrin fal­leg í akrýl­stein­inum og skemmti­legt að vinna með hann.

„Ég fékk hjá þeim nokkrar afgangs­plötur sem hafa fallið til við fram­leiðsl­una.“

Ég fór síðan til þeirra í Logoflex, en þeir voru mjög hjálp­legir og sam­vinnu­fúsir. Ég fékk þá til að skera út fyrir mig ýmis form úr plöt­unum, sem ég rað­aði svo saman. Ég vil gjarnan koma á fram­færi þökkum til Orgus og Logoflex fyrir sam­starfið. „Jólakúlan“ sjálf varð að þremur sampúsl­an­legum ein­ingum, sem hægt er að hengja upp og njóta hvort sem er á jóla­tré, á vegg, á borði eða í glugga. Þessar ein­ingar púsl­ast einnig saman í formskúlp­túr sem getur staðið einn og sér þrátt fyrir að jóla­há­tíðin sé liðin. Hægt er að leika sér svo­lítið með þetta og fjög­urra ára sonur minn er strax far­inn að dunda sér við að púsla þessu saman. Hver ein­ing gæti túlkast sem lítið vetr­ar­lands­lag með arki­tektónísku yfir­bragði, þar sem hvítur, svartur og föl­grænn spila fal­lega saman. Snjór, myrkur og norð­ur­ljós.“

Karitas end­ur­nýtti efni til að búa til sína útgáfu af jólakúlu.

Hvað kemur þér í jóla­skap?

„Þegar myrkrið hellist yfir dag­ana er mjög jóla­legt að kveikja á kertum í skamm­deg­inu og fá til­finn­ing­una um að jólin nálgist brátt. Það veitir mér gleði og góða til­finn­ingu í jóla­hjartað. Einnig fal­leg kór­tón­list og ilmur af mandar­ínum og pip­ar­kökum. Hin eina og sanna jóla­lykt, ilm­ur­inn af heima­gerðu rauð­káli hjá mömmu á aðfanga­dag er það sem end­an­lega kemur mér í jóla­skap, skyldi það ekki hafa látið sjá sig.“

Hvað er ómissandi yfir hátíð­irnar?

„Það eina sem er ómissandi yfir hátíð­arnar, að mínu mati, er fjöl­skyldan. Samvera, kerta­ljós, góður matur, afslöppun og ró með fjöl­skyld­unni gefa sönn jól í hjarta. Svo verður að segj­ast að heima­bak­aðar smákökur eru líka alveg ómissandi – enda til­valin sam­veru­stund að sam­ein­ast yfir jóla­bakstri og maula svo lystisemd­irnar yfir heitu súkkulaði.“

Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni