Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Kauphöllin rýnir í falska tilkynningu Festi: „Við erum með þetta í skoðun“

Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar.
Magnús Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hall­ar­innar.

Forstjóri Kaup­hallarinnar segir í samtali við Viðskipta­blaðið að tilkynning Festi um starfslok Eggerts Þórs Krist­óferssonar, forstjóra félagsins, sé til skoðunar hjá Kaup­höllinni.

Tilkynningin vakti mikla athygli og hefur málið verið töluvert í deiglunni undan­farna daga. Í tilkynningunni var það fullyrt að Eggert hefði sjálfur sagt starfi sínu lausu. Samkvæmt heimildum á það þó ekki við rök að styðjast, heldur var honum sagt upp.

Talsverð ólga hefur verið meðal hluthafa og fjárfesta í félaginu í kjölfarið. Í dag var til að mynda greint frá því að hluthafar ræddu nú um það sín á milli að óska eftir hluthafa­fundi vegna málsins. Eggert Þór var að sögn afar vel liðinn og orðspor hans í starfi gott.

Eggert Þór Krist­ó­fers­son

Eftir að í ljós kom að Eggert hefði raunar ekki sagt upp sjálfur, vakti það undrun og reiði að stjórn félagsins skyldi miðla slíkum upplýsingum til hluthafa sinna.

„Við erum með þetta í skoðun. Það er í raun og veru eins og með mörg önnur mál er varða upplýsinga­skyldu skráðra félaga á markaði,“ segir Magnús Harðarson, forstjóri Kaup­hallarinnar, í samtali við Viðskipta­blaðið, aðspurður hvort tilkynning Festi sé til skoðunar þar.

Heimildir herma að skýring­arnar sem Eggert Þór fékk á uppsögninni hafi verið á þá leið að gera ætti breytingar hjá félaginu. Samkvæmt Viðskipta­blaðinu var honum einnig tjáð að sjö ár væri hæfilegur tími í forstjóra­stóli.

Samkvæmt heimildum Mannlífs hafði meirihluti stærstu hluthafa í Festi fyrst frétt af uppsögn Eggerts Þórs þegar tilkynningin barst Kaup­höllinni. Í kjölfar tilkynningarinnar lækkaði hlutabréfa­verð fyrir­tækisins um 3,7 prósent.

Eggert hefur starfað hjá Festi og forvera félagsins í 11 ár. Í forstjóratíð hans hefur Festi og fyrirtæki samstæðunnar skilað miklum hagnaði. Ávöxtun hluthafa hefur verið með því hæsta sem sést hefur á Íslandi frá fjármála­hruni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá