Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vilja hluthafafund í Festi – Óánægja með uppsögn Eggerts

Vilja hluthafafund í Festi – Óánægja með uppsögn Eggerts
Eggert Þór Krist­ó­fers­son Mynd: n1.is

Hlut­hafar í Festi ræða nú um það sín á milli að óska eftir hlut­hafa­fundi í félag­inu vegna upp­sagnar Eggerts Þórs Krist­ó­fers­sonar úr starfi for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Mbl.is greinir frá þessu.

Síðustu daga hefur verið fjallað um ólgu meðal hlut­hafa vegna upp­sagnar Eggerts. Um er að ræða bæði einka­fjár­festa og líf­eyr­is­sjóði. Hlut­haf­arnir eru sagðir ekki hafa vitað af brott­hvarfi Eggerts fyrr en til­kynn­ing var send til Kaup­hall­ar­innar í síð­ustu viku. Í til­kynn­ing­unni kom fram að Eggert hafi sjálfur ákveðið að segja starfi sínu lausu. Í kjöl­farið lækk­aði hluta­bréfa­verð fyr­ir­tæk­is­ins um 3,7 pró­sent.

Mynd/skjá­skot RÚV

Eggert hefur starfað hjá Festi og for­vera félags­ins í 11 ár. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er hann afar vel lið­inn, með gott orð­spor í starfi. Í for­stjóra­tíð Eggerts hefur Festi og fyr­ir­tæki sam­stæð­unnar skilað miklum hagn­aði. Ávöxtun hlut­hafa hefur verið með því hæsta sem sést hefur á Íslandi frá fjár­mála­hruni.

Uppsögn Eggerts er sögð hafa komið sem þruma úr heið­skýru lofti og greint hefur verið frá tölu­verðri óánægju meðal hlut­hafa í Festi vegna máls­ins.

Heimildir herma að Eggerti hafi verið sagt upp

Til­kynn­ingin bar þess merki að Eggert hefði sjálfur skyndi­lega ákveðið að láta af störfum. Heim­ildir Mannlífs herma að svo hafi ekki verið, heldur hafi Eggerti var sagt upp störfum og honum tjáð að stjórn fyr­ir­tæk­is­ins vildi „breyta til“.

Þórður Már Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Festar.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs var það meðal ann­ars fyrir til­stilli hlut­haf­anna Þórðar Más Jóhann­es­sonar og Hregg­viðs Jóns­sonar að hann var lát­inn fjúka. Þórður Már neydd­ist til að segja sig úr stjórn Festis og hætta sem stjórn­ar­for­maður eftir að fjöl­miðlar upp­lýstu um ásak­anir Vítalíu Lazarevu á hendur þeim Hregg­viði, en hún sagði þá hafa farið yfir mörk sín kyn­ferð­is­lega í sum­ar­bú­stað­ar­ferð. Hregg­viður sagði sig úr stjórn Veritas og tengdra fyr­ir­tækja í kjöl­far ásakan­anna.

Hregg­viður Jónsson

Eggert hefur haft sig í frammi í umræðu um mál tengd MeToo-bylt­ing­unni og for­dæmt fram­ferði þeirra sem sagðir eru hafa farið yfir mörk kvenna.

Í ágúst 2021 steig Eggert fram og gagn­rýndi for­ystu KSÍ vegna meintra kyn­ferð­is­brota sem þá voru til umfjöll­unar. Festi hefur verið einn af stærstu bak­hjörlum Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands.

Heim­ild­ar­menn Mannlífs segja þá Þórð og Hreggvið vart hafa rætt við Eggert frá því meint kyn­ferð­is­brota­mál þeirra kom upp í fjöl­miðlum.

Hugsanleg þöggun í starfslokasamningi

Laun Eggerts á árinu 2020 voru um 73 millj­ónir króna og heim­ildir Mannlífs herma að ráðn­inga­samn­ingur Eggerts tryggi honum ein árs­laun hið minnsta. Líklegt má þó telja að stjórn fyr­ir­tæk­is­ins hafi kosið að gera enn betur við for­stjór­ann, sem malað hefur gull fyrir hlut­hafa sína, gegn því að hann tjái sig ekki um starfs­lokin.

Til þess að knýja megi fram hlut­hafa­fund þarf ósk þess efnis að ber­ast frá 10% hluta félags­ins. Líf­eyr­is­sjóðir eiga um 70% hlut í félag­inu. Þar sem ólík­legt þykir að sjóð­irnir taki þátt í að kalla eftir hlut­hafa­fundi mun það að öllum lík­indum verða undir einka­fjár­festum komið að safna saman und­ir­skriftum 10% hlut­hafa í félag­inu.

Vítalía Lazareva þakk­aði Eggerti fyrir stuðn­ing­inn í máli hennar, í fram­haldi af frétt Mannlífs síð­ustu helgi, og sagði hann vera einn fárra sem hlustað hefðu á hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina