Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Björn um Bjarna: „Það er svo aug­ljóst að hann er að bregðast sinni skyldu“

Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata.

Þing­maður Pírata, Björn Leví Gunnars­son, segir í samtali við Frétta­blaðið ­ljóst að Bjarni Bene­dikts­son formaður Sjálfstæðis­flokksins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ætti að stíga til hliðar á meðan mörgum spurningum er enn ó­svarað um sölu á hlut ríkisins í Ís­lands­banka:

„Mér finnst rosa­lega aug­ljóst að fjár­mála­ráð­herra á ekki að vera neins staðar þar sem hann er mögu­lega fyrir ein­hverju ferli í rann­sókninni á þessu. Það er svo aug­ljóst að hann er að bregðast sinni skyldu, sinni á­byrgð, gagn­vart þeirri á­kvarðana­töku sem hann á að fara í,“ segir Björn og vísar til þess að ráð­herra hafi ekki óskað eftir meiri upp­lýsingum þegar fjöldi til­boða í hlut ríkisins lá fyrir:

Bjarni Bene­dikts­son.

„Banka­sýslunni var aug­ljós­lega hent undir rútuna, það var al­gjört klúður. Það var mjög aug­ljóst frá upp­hafi og í rauninni var þáttur fjár­mála­ráð­herra bara ekkert skoðaður. Það er þarna gagn­rýni á að það hafi verið aug­ljós mis­tök við undir­búning og það er fjár­mála­ráðu­neytið og fjár­mála­ráð­herra sem er þarna í undir­búningnum og hann er þarna í á­kvarðana­tökunni um verð, magn og svo­leiðis.“

Björn segir á­huga­vert að svo virðist sem fjármála­ráðherra hafi fengið rangar upp­lýsingar varðandi söluna:

„Það er ekki nægi­lega vel út­skýrt í skýrslunni en það virðist vera að hann hafi fengið rangar upp­lýsingar, sem er rosa­lega al­var­legt að ráð­herra fái rangar upp­lýsingar fyrir svona stóra á­kvarðana­töku en þegar upp­lýsingarnar eru á þann hátt að það eru 150-200 til­boð að ráð­herra biðji ekki um að fá ná­kvæmari upp­lýsingar. Mér finnst þetta vera al­gjör á­fellis­dómur yfir ferlinu. Mér finnst það aug­ljóst að klúðrið er það mikið að ég þarf ekki frekari rann­sókn til þess að segja að þetta er greini­lega eitt­hvað sem varðar ráð­herra­á­byrgð, það er mín skoðun. Pólitískt er þetta nóg fyrir mig. Hvort að síðan laga­lega séð, hvort að á­byrgðin komi inn, það er flóknara,“ segir Björn, sem er ekki á­hyggju­fullur yfir því að skýrslunni hafi verið lekið til fjöl­miðla sólar­hring áður en hún birtist al­menningi:

„Áður birti Ríkis­endur­skoðun þessar skýrslur strax en þingið bað um auka tíma fyrir þing­menn til þess að lesa skýrsluna áður en fjöl­miðlar væru farnir að segja um niður­stöður skýrslunnar. Þá hefði þingið smá tíma áður en það væri búið að reka hljóð­nema framan í þau ó­lesin að koma með at­huga­semdir, en það var síðan ekkert vanda­mál. Þetta er klassísk af­vega­leiðing, að kalla þetta brot á trúnaði en þessi trúnaður er ekki neitt. Þetta eru smá tafir á birtingu, tíma­bundinn trúnaður fyrir á­kveðið svig­rúm fyrir þing­menn sem var þegar til staðar hvort eð er. Ég hef engar á­hyggjur af þessu, þetta er ekki trúnaðar­brestur fyrir fimmaura,“ sagði Björn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning