Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Skipið m.s. Berglind sökk fyrir utan strendur Nýfundnalands

Mynd / skjáskot timarit.is
Mynd / skjá­skot tima­rit.is

Berglind sökk fyrir utan strendur Nýfundnalands

Rétt fyrir klukkan þrjú i gærdag sökk m.s. Berglind um fimm sjómilur frá Sydney, Nova Scotia á Nýfundnalandi, eftir að hafa kvöldiö áður lent i árekstri við danska flutninga­skipið Charm.“

Þriðjudaginn, 21. júlí 1981, var forsíðu­frétt á Tímanum um sjóslys. Helstu fjöl­miðlar landsins fjölluðu um málið en m.s. hafði lent í áreksri við danska flutningskiptið Charm.

„Áreksturinn varð um 17 sjómilur frá Sydney i fyrra­kvöld, og var þá niðdimm þoka á slys­staðnum. Skipið var á leið frá Portsmouth til Reykja­vikur. Við áreksturinn kom gat á stjórnborðs­hlið Berg­lindar, framarlega, og féll við það sjór i framlest skipsins“

Skipið og allur farmur þess sökk en eins og fram hefur komið en áhöfnin bjargaðist blessunar­lega öll.

Nítján voru um borð

Öll áhöfnin var íslensk og voru fjórtán af skip­verjum Berg­lindar bjargað yfir í danska skipið, Charm en hinir biðu, um borð í Berglindi, í fimm klukku­stundir þar til  kanadískur dráttar­bátur kom og tók skipið í tog.

„En svo mikill sjór var þá kominn í skipið að það sökk á leið til hafnar, um kl. 14,45 í gær að (íslenzkum tfma. Skip­verjarnir voru þá komnir yfir í kanadíska dráttar­bátinn. Sakaði engan af áhöfninni sem nú dvelst í Sydney, Nova Scotia,“ kemur frá á baksíðu Dagblaðsins frá sama tíma.

Skipið

Berglind var rúmlega 10 ára gamalt skip þegar það sökk og um tíma stærsta skip íslenska kaup­skipa­flotans. Skipið var í eigu islenskra kaupskipa sem var dóttur­fyrirtæki Eimskipa­félagsins, en Eimskip sá um rekstur þess.

Áreksturinn óumflýjanlegur

Sjópróf voru gerð og skýrslur teknar af báðum skip­stjórum skipanna. Virðist að áreksturinn hafi verið óumflýjanlegur þrátt fyrir viðvörunar­hljóð frá báðum skipunum. Á reki var hvort skipið hafi verið í rétti en í blaða­grein Tímans frá 29. júlí sama ár kemur fram að margt bendi til þess að Berglind hafi verið í órétti samkvæmt sjóferða­reglum. Þá einkum vegna stað­setningu á skemmda skipsins.

„Áhöfn Berg­lindar var yfirheyrð í sjódómnum í gær. Önnur sjópróf fara fram síðar í Danmörku yfir áhöfn danska skipsins m.s. Charm. Báðir skip­stjórarnir gáfu skýrslu um áreksturinn stuttu eftir hann hjá kanadísku strand­gæslunni. Þær hafa ekki borist hingað til lands.

Að tilmælum lögmanna íslenskra kaupskipa og Eimskips við réttar­haldið í gær verður litið á þær upplýsingar sem fram komu sem trúnaðarmál þar til sjóprófum er lokið yfir áhöfn danska skipsins. Mikil verðmæti eru i húfi og þvi áriðandi að dönsku skip­stjórnar­mennirnir geti ekki hagrætt sann­leikanum, sínu útgerðar­félagi í vil, á grund­velli upplýsinga sem fram koma við sjóprófin í Reykjavík. Samt sem áður liggur ljóst fyrir, að það er danska skipið sem siglir framarlega á Berglindi stjórnborðsmegin (hægra megin) með þeim afleiðingum að gat kemur á, sem síðan leiðir til þess að Berglind sekkur. Samkvæmt almennum umferðar­reglum á hafi úti skal það skip víkja sem hefur annað skip á stjórn­borða, þegar stefnur þeirra skerast og hætt er við árekstri. Charm siglir á Berglindi stjórnborðsmegin, þannig að Berglind virðist hafa verið í órétti. Það eina sem getur bjargað Berglindi i þessu máli er það að danska skipið hafi ekki haldið sinni uppruna­legu stefnu eða breytt hraða, þegar til árekstrarins kom. Verður það væntanlega leitti ljós i sjóprófunum ytra. Þangað til verður sjóprófunum hér á landi frestað. Niðdimm þoka var á áreksturs­staðnum. Svo virðist vera sem bæði skipin hafi gefið frá sér hljóð­merki til varúöar, en það þó ekki komið að haldi, þar sem áreksturinn varð ekki umflúinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað