Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Saki gefur út plötuna Dauðvona: „Ferlið mjög erfitt en á sama tíma mjög lærdómsríkt og gefandi“

Ísak Dagur Kristjánsson
Ísak Dagur Krist­jáns­son Mynd: YouTube-skjáskot

Tón­list­ar­mað­ur­inn Ísak Dagur Krist­jáns­son, sem ber sviðsnafnið Saki, gaf út níu laga plötu í byrjun októ­ber sem ber heitið Dauðvona. Segir hann að platan sé end­ur­komu­saga.

Mannlíf heyrði í Ísak af til­efni af plötu­út­gáf­unni og spurði hann út í gerð plöt­unnar og hvaða mein­ingar séu að finna á henni.

Ísak: „Platan hefur verið í vinnslu hjá mér síð­ast­liðna 18 mán­uði og er ég búinn að setja hana þannig upp að hún segir ákveðna end­ur­komu­sögu, frá því að vera á rangri leið (lagið Dauðvona), yfir í að sjá réttu leið­ina áfram og skipta um stefnu. Lögin hafa öll sína sögu og eru sum lög á plöt­unni svo­lítið þung og drunga­leg en aftur á móti koma lög sem gefa hlýju og hægt er að syngja með.“

En af hverju heitir platan Dauðvona?

„Ég skýrði plöt­una Dauðvona eftir fyrsta lag­inu sem ég gaf út, en þetta lag gefur ákveðna inn­sýn í hug­ar­farið á bak við plöt­una. Þessi plata/saga er um erf­ið­leika, brostnar vonir, bar­áttu og að lokum frelsið sem kemur þegar maður breytir við­horfi og maður sigrar von­leysið.“

Ísak segir gerð plöt­unnar hafa verið mjög erfið en lær­dóms­rík.

„Ferlið hefur verið mjög erfitt en á sama tíma mjög lær­dóms­ríkt og gef­andi. Mig hefur langað að gef­ast upp og hætta alveg við þetta verk­efni margoft, en ég lagði of mikið undir til að geta hætt við. Ég er mjög sáttur við útkom­una og hlakka til að taka næsta skref reynd­ari en áður.“

Hægt er að hlusta á plöt­una í heild sinni á Spotify.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið