Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Erfitt að bæta náttúruhamförum við hjá Landspítala: ,,Staðan mjög þung og engin laus pláss“

Hjalti
Hjalti Mynd: RUV

,,Bráða­móttaka Land­spítalans er yfirfull og legu­deildir sömuleiðis og því er geta til að taka á móti mörgum slösuðum, til dæmis eftir hópslys, skert, að sögn Hjalta Más Björns­sonar, yfir­læknis bráða­lækninga á spítalanum.“ Svo segir í viðtali RÚV við Hjálta Má. ,,Því hefur verið beint til fólks að leita frekar á heilsu­gæslu eða læknavakt, en á bráða­móttöku, vegna vægra slysa eða minni­háttar veikinda. Margir sjúklingar bíða á bráða­móttökunni eftir að komast á legu­deildir spítalans, þar sem einnig er þröngt.“

Hjalti Már segir að Land­spítalinn sé með mjög ítarlegar viðbragðs­áætlanir sem að gera ráð fyrir rýmingu bráða­móttökunnar og legu­deilda útkalli starfs­fólks til þess að sinna slíkum viðburði. Hann kveðst því hafa fulla trú á því að Land­spítalinn geti sinnt slíku ef til þess kæmi. „En að því sögðu þá er náttúru­lega viðbragðs­geta ekki jafn góð og hún ætti að vera þar sem að það eru í dag engin pláss laus í dag á Land­spítalanum, þannig að svigrúm okkar til þess að bregðast við mögulegu hópslysi eða náttúru­hamförum sem myndi valda miklu aðstreymi slasaðra á spítalann er skert og ekki jafn gott og það ætti að vera,“ segir hann.

Staðan þung á bráðamóttöku

Staðan á bráða­móttökunni er þung þessa dagana, að sögn Hjalta Más. Þar eru nítján sjúklingar sem bíða innlagnar, þar af eru sjö sem hafa beðið lengur en í sólar­hring. „Það er ekki bara á bráða­móttökunni því að staðan á legu­deildum er líka einnig mjög þung og þær eru flestar fullar eða talsvert yfir skilgreindri getu og þess vegna er það bara einfald­lega þannig að það eru ekki tilbúin legudeildar­pláss á Land­spítalanum fyrir þá sem þess þurfa.“

Þeim tilmælum hefur verið beint til fólks að ef það er með minni­háttar veikindi eða meiðsli sem ekki eru bráð að leita frekar til heilsu­gæslu eða Lækna­vaktarinnar. Hjalti Már segir að ef fólk sé með bráð veikindi eða hafi grun um að eitthvað alvarlegt sé að, eigi það ekki að hika við að koma á bráða­móttökuna þar sem starfs­fólk leggi sig fram um að veita eins góða þjónustu og hægt er miðað við ástandið.

Minna um inflúensu en oft áður

Ekki eru fleiri sem leita á bráða­móttökuna þessa dagana en alla jafna og segir Hjalti Már að fjöldinn sé svipaður og í venjulegu árferði. Þá sé heldur minna um inflúensu en oft áður, en gerst hefur að hún hafi skapað mikið álag á þessum árstíma. Það er því fráflæðis­vandinn sem skapar ástandið núna. „Það virðist vera þannig að það eru ekki nægilega mörg pláss til að annast þá sem að þurfa innlögn á sjúkrahús eða hjúkrunar­heimili,“ segir Hjalti Már. Það séu tugir einstaklinga á Land­spítalanum núna inni­liggjandi sem hafi lokið virkri meðferð og fái ekki pláss á hjúkrunar­heimilum og það síðan valdi því að sjúklingar á Bráða­móttöku, sem að þurfi innlögn komist ekki á legu­deildir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Lúðvík Pétursson féll í sprungu við vinnu í Grindavík í janúar 2024.
Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto