Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Leikskólastarfsmaður skrifar Katrínu: „Þú móðgaðist og sagðist aldrei biðja um leyfi til að tala“

Mynd / Hákon Davíð Björnsson
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Zahra Hussaini er starfs­maður á leikskóla, og hún skrifar opið bréf til forsætis­ráðherra, Katrínar Jakobs­dóttur:

„Sæl Katrín Jakobs­dóttir, Ég heiti Zahra Hussaini og er 33 ára kona frá Afganistan. Ég hef búið á fjölmörgum stöðum, til að mynda í Íran, Afganistan, Pakistan, Tadjikistan, Þýska­landi og á Íslandi. Ef þú spyrð mig hvað ég hafi verið að gera í þessum löndum eða hvernig ég ferðaðist til þeirra, get ég sagt þér að ástæðan var hvorki frí né skemmtiferð.“

Hún bætir við:

„Ástæðurnar fyrir því að ég og fjöl­skylda mín þurftum að flytja til þessara landa voru margar; ótti, stríð, kerfis­bundin mismunun, óréttlæti, vonleysi, möguleiki á betri menntun og einhverri atvinnu, möguleiki á stöðug­leika í lífinu. Ég var ekki einungis innflytjandi og flótta­maður í öðrum löndum, heldur einnig í mínu eigin landi þar sem við þurftum að flýja frá einum stað á annan innan Afganistans. Ég man ekki eftir neinum af vinum mínum úr barnæsku og er ekki í neinu sambandi við þau vegna stöðugra flutninga.“

Zahra segir að „í hvert sinn sem ég byrjaði að mynda vináttu­sambönd, neyddumst við til að flytja enn á ný. Ég missti af mörgum dýrmætum stundum og fólki í lífi mínu vegna þessa. Þrátt fyrir alla erfið­leikana hélt ég áfram í öll þessi ár að berjast og læra nýja hluti, byggja upp ný sambönd og nýtt líf.

Hvert sem ég fór lærði ég tungmálið og kynnti mér menninguna.

Þegar fólk gefur mér eitthvað, gef ég alltaf eitthvað til baka líka.“

Hún nefnir að „í þarsíðustu viku, þegar ég las fréttirnar um fólkið sem var brott­vísað frá Íslandi til Grikk­lands, varð ég fyrir áfalli. Ég endur­upplifði allar þær erfiðu stundir sem ég og fjöl­skylda mín höfum þurft að ganga í gegnum. Það er jafn­hættulegt að vera flótta­maður í landi þar sem þú hefur engin réttindi, ekkert öryggi og engan aðgang að menntun eða heilbrigðis­þjónustu, og að vera í sínu eigin landi þar sem er stríð. Munurinn er sá að í stríði deyrðu snögglega, en í aðstæðum þar sem þú nýtur engra réttinda og lifir við stöðuga óvissu mætirðu löngum og kvala­fullum dauða.

Ég hef misst mikið af nánum fjölskyldu­meðlimum í stríði. Ég hef horft upp á frændsystkini og föður- og móður­bræður vera myrt af Talibönum vegna þess eins að við tilheyrum etnískum og trúar­legum minnihlutahóp í Afghanistan og vegna þess að við tölum annað tungumál.

Þegar ég og fjöl­skylda mín bjuggum í Íran gat faðir minn ekki fengið atvinnu­leyfi. Hann vann þó á byggingar­svæðum í sífelldum ótta við að lögreglan myndi birtast á hverri stundu og brottvísa honum til Afganistan án þess að láta fjöl­skylduna vita. Skóla­ganga mín og systkina minna í Íran var slitrótt af því að í hvert sinn sem pólitískt ástand á milli Afganistan og Íran breyttist, hafði það áhrif á hvort írönsk stjórn­völd leyfðu okkur að fara í skólann eða ekki.“

Hún nefnir afar sorglegt dæmi:

„Mamma mín fæddi dóttur á spítala í Íran, hún gaf henni af brjósti einu sinni, en daginn eftir sögðu læknarnir henni að barnið hefði dáið. Foreldrar mínir fengu aldrei að sjá líkið. Þau gátu ekkert gert til að leita réttar síns, einungis vegna þess að þau voru flótta­fólk og höfðu engin lagaleg réttindi. Hvers vegna er ég að segja þér þetta allt saman? Vegna þess að sama ástand blasir við flótta­fólki í Grikk­landi. Ég er ekki að biðja þig um að hjálpa öllu flótta­fólki í Grikk­landi, heldur bið ég þig um að hjálpa flótta­fólki sem hefur nú þegar tekið áhættuna að komast alla leið til Íslands.

Ég samgleðst þér og Íslendingum – þið hafið aldrei þurft að upplifa stríð og óttann við að missa einhvern nákominn í stríðs­átökum. En verandi manneskjur þekkjum við öll hvernig það er að ganga í gegnum streitu­valdandi tímabil, eins og til dæmis að byrja í grunn­skóla. Krakkarnir eru nýir, umhverfið er ókunnugt, þú þekkir hvorki reglurnar né hlut­verkin. Það tekur tíma til að kynnast öllum og öllu. Ef við erum heppin höfum við fólk í kringum okkur sem að styður okkur og hvetur okkur áfram, líkt og foreldra, kennarar og vinir, svo að við getum eflst, þroskast og lært nýja hluti. Flótta­fólk er eins og þessi börn, þau þekkja engan og ekkert í nýju umhverfi, en í ofan álag eru engir vinir, foreldrar eða kennarar til að hjálpa þeim og leiðbeina, heldur einungis fullt af hindrunum.“

Zahra grátbiður Katrínu forsætis­ráðherra um hjálp:

„Gerðu það Katrín, hjálpum því flótta­fólki sem kemur til landsins að finna fyrir stöðug­leika, vináttu og öryggi á meðan þau fóta sig í nýju umhverfi og hættum að brottvísa fólki til Grikk­lands. Í síðustu viku, aðeins nokkrum dögum eftir brott­vísanirnar hræðilegu, hélt ég ræðu í gjallar­horn þegar þú áttir að tala á málþingi um raddir og tungumál etnískra minnihluta­hópa. Þú móðgaðist og sagðist aldrei biðja um leyfi til að tala, hvorki nú né nokkurn tíman, og hlaust lófaklapp fyrir frá salnum. Um leið hugsaði ég: auðvitað þarftu ekki að biðja um leyfi að tala þú ert forsætis­ráðherra, þér er boðið út um allt. Ég þarf hinsvegar að berjast fyrir því í hvert einasta sinn að fá að tala, að rödd mín fái að heyrast, hvort sem það er á Íslandi, í Afganistan eða á málþingi um hópa sem ég tilheyri sjálf. Það er bein afleiðing þess að tilheyra minnihluta­hópi.

Ég vona að þetta bréf nái til þín Katrín Jakobs­dóttir, en einnig til allra hinna sem fara með pólitísk völd á Íslandi. Síðast en ekki síst vona ég að þetta nái til almennings á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning