Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ráðgátan um Loga og hótelherbergið: „Mér sýnist að þeir viti af þessu“

Logi Bergmann Eiðsson
Logi Bergmann Eiðsson

„Sann­leikurinn kemur alltaf í ljós,“ segir Vítalía Lazareva í samtali við Loga Bergmann Eiðsson, sem sjá má á skjáskoti sem gengið hefur um samfélags­miðla.

Fleiri skjáskot eru í umferð, meðal annars af samtali þar sem Vítalía hefur samband við Loga og greinir honum frá því að atvik sem hafi átt sér stað þeirra á milli hafi reynst henni þungbært. Hún ætli sér lengra með málið. Í samtalinu svarar Logi fálega til að byrja með, en segir svo einfald­lega „Æ hættu þessu rugli“.

Samskipti þeirra enda þó ekki þar. Einhverju síðar, þann 21. desember, sendir Vítalía Loga eftir­farandi skilaboð:

„Mætti ég biðja þig um að vera ekki að spurja spurninga um einkalíf mitt í vinnunni aftur.“

Logi svarar þá; „Já. Fyrir­gefðu“.

Vítalía segir honum þá að hún kunni ekki að meta að hann skuli halda því fram að ekkert hafi gerst, en hafi síðan spurt hana út í málið í persónu. „Stangast vel á við það sem þú vilt halda fram að sé lygi. Sann­leikurinn kemur alltaf í ljós.“

„Já. Hann gerir það yfirleitt,“ segir Logi þá.

Vítalía spyr Loga því næst; „Hvernig stendur á því að þú sért búinn að segja Ara frá þessu?“

Logi segist þá ekki hafa talað við Ara.

„Hann veit af þessu og spurði mig persónu­lega hvort þú yrðir kærður fyrir, þess vegna spurði ég þig,“ segir Vítalía þá.

„Það er ekki frá mér komið. Ég hef ekki nefnt þetta við hann,“ segir Logi.

„Hver veit af þessu? Þér vitandi það er að segja,“ spyr Vítalía þá.

Logi svarar; „Ég veit það ekki en mér sýnist að þeir viti af þessu.“

Vítalía spyr þá; „Eru þeir búnir að vera að „hóta“ eitthverju eða nefna þetta við þig?“

„Nei. Hafa reyndar spurt mig en ég hef reynt að eyða þessu,“ svarar Logi.

Einn Ari tengdur frásögn Vítalíu

Einn maður að nafni Ari er sagður tengjast frásögn Vítalíu í hlað­varpinu Eigin konur, sem hefur sett af stað miklar öldur í samfélaginu. Sá er Ari Edwald, framkvæmda­stjóri Ísey útflutnings, en hann var nafn­greindur í tengslum við pottaferð, þar sem Vítalía segir nokkra þjóð­þekkta karlmenn hafa misboðið henni og farið gróflega yfir mörk. Segir hún þá meðal annars hafa þuklað sig og stungið fingrum í endaþarm hennar.

Ari fór í leyfi frá störfum hjá Ísey í gær í kjölfar þessara ásakana. Stjórnar­formaður Ísey staðfesti þetta.

Ari Edwald.

Atvikið í golfferðinni og kynlífsspilin

Samtalið hér að ofan bendir til þess að sá Ari sem talað er um hafi vitað af einhverju sem honum þótti ástæða til þess að spyrja hvort Logi yrði kærður fyrir.

Logi Bergmann er maðurinn sem sakaður er um að hafa gengið inn á þau Vítalíu og Arnar Grant á hótel­herbergi þegar vinirnir voru í golfferð í september síðastliðnum. Í kjölfarið segir Vítalía Arnar hafa boðið Loga með þeim inn á herbergi og gefið honum leyfi til þess að eiga kynferðisleg samskipti við Vítalíu. Þetta hafi hann gert til þess að kaupa þögn Loga, svo ekki kæmist upp um fram­hjáhald Arnars.

„Hann dregur spil úr einhverju kynlíf­sleikja­spili, sem er einhver svona mönun; eitthvað sem maður á að gera. Þá á ég bara að fara að sjúga á manninum typpið og hann að fara niður á mig. Og þetta er gert til þess að hann fái að halda þögn; svo þessi vinur hans fari ekki og segi konunni hvað er í gangi. Ég horfi í augun á honum og segi: Ég vil ekki meira, viltu hætta þessu. Hann sagði bara: Vítalía, þetta er allt í lagi, ég er með þér.

Ég get ekki meira og ég er að fara að gráta og hann segir bara: Þetta er allt í lagi, því ég er með þér.“ Svo hljóðar hluti frásagnar Vítalíu úr viðtalinu sem Edda Falak tók við hana í hlað­varpinu Eigin konur.

Logi Bergmann er kominn í frí frá útvarps­stöðinni K100. Hann birti yfir­lýsingu á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann kvaðst saklaus af ásökunum. „Ekkert er fjær mér en að þröngva annarri manneskju til kynferðislegra athafna,“ sagði Logi í yfir­lýsingu sinni.

Hann sagðist hinsvegar sekur um að hafa farið yfir mörk í einkalífi fólks „með því að hafa farið inn í herbergi sem ég átti ekki að fara inn í. Það var taktlaust og heimskulegt og ég hef þegar tjáð viðkomandi að ég taki ábyrgð á því og mér þyki það leitt.“

Vítalía Lazareva. Skjáskot úr hlað­varp­inu Eigin konum.

„Mér sýnist að þeir viti af þessu“

Í skjáskotinu af samtali þeirra Vítalíu og Loga virðist atvik vera til umræðu, sem Vítalía segir Ara hafi spurt hvort Logi yrði kærður fyrir. Logi gerir ekki athugasemd við það í samtalinu. Þegar Vítalía spyr hann hvernig standi á því að hann hafi sagt Ara frá, segist hann ekki hafa talað við Ara, en gefur ekki á nokkurn hátt í skyn að það sé ekkert til að segja frá. Hann segir líka „mér sýnist að þeir viti af þessu.“

Miðað við yfir­lýsingu Loga frá því í gær er þarna einungis verið að ræða atvik þar sem Logi hafi fyrir mistök gengið inn á Arnar Grant og Vítalíu á hótel­herbergi. Ekkert meira hafi átt sér stað.

Hér að neðan má sjá skjáskotin:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá