Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Þetta eru mennirnir sem Vítalía ásakar – Ari í leyfi vegna ásakana

Ari Edwald, framkvæmda­stjóri Ísey útflutnings, er kominn í leyfi frá störfum. Stjórnar­formaður Ísey stað­festir þetta og segir Ara sjálfan hafa óskað eftir leyfinu. Hún stað­festir jafnframt að leyfið komi til vegna ásakana ungrar konu um að Ari hafi, ásamt nokkrum öðrum mönnum, farið yfir mörk hennar í sumar­bústaða­ferð. Það er Stundin sem greinir frá þessu í dag.

Vítalía Lazareva birti nafn Ara Edwald og nokkurra annarra manna á Instagram-síðu sinni í október á síðasta ári í tengslum við brot sem hún sagðist hafa orðið fyrir í sumar­bústað í desember 2020. Hún kom svo fram í hlaðvarps­þættinum Eigin konur og lýsti atburðunum sem áttu sér stað í bústaðnum, án þess þó að nafn­greina mennina að nýju. Hún var stödd í sumar­bústaðnum með manni sem hún var í ástar­sambandi með á þeim tíma. Allir mennirnir sem um ræðir eru töluvert eldri en Vítalía, sem í dag er 24 ára.

Í hlaðvarps­þættinum sagðist Vítalía hafa frosið í aðstæðunum. „Þetta fór alveg yfir öll mörk sem hægt var að fara yfir,“ sagði hún meðal annars.

Þórður Már Jóhannesson, stjórnar­formaður Festar, er annar maður sem Vítalía nafn­greindi á Instagram í tengslum við hið meinta brot. Mannlíf hefur ítrekar reynt að ná tali af Þórði vegna málsins, án árangurs.

Hinn þriðji sem Vítalía hefur áður nafn­greint er Hreggviður Jónsson, stjórnar­formaður og aðal­eigandi Vistor. Ekki hefur heldur náðst í hann þegar fréttin er skrifuð.

Fyrrum ástmaður Vítalíu er Arnar Grant heilsu­ræktar­frumkvöðull og einka­þjálfari en skjáskot af samskiptum þeirra hafa verið birt á samfélags­miðlum. Þá er vinur Arnars sem gekk inn á þau í golf­ferðinni Logi Bergmann, sjónvarps- og útvarps­maður, en sá hefur ekki viljað tjá sig síðan í gær.
Þá sagðist hann ekki hafa tíma til þess að ræða málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.
Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Lögregla stöðvaði þrjá ökumenn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í gærkvöldi og nótt.

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts