Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Þjóðþekktir Íslendingar sakaðir um kynferðisbrot: „Ég hef ekki tíma til að tala um þetta“

Á sam­fé­lags­miðlum hefur und­an­farið verið mikið rætt um þjóð­þekkta menn sem sak­aðir eru um mis­ferli gagn­vart ungri konu. Um er að ræða tvö aðskilin atvik.

Meintur brota­þoli á að hafa átt í ást­ar­sam­bandi við einn mann­anna, sem er kvæntur. Fyrr í vetur birt­ust frá­sagnir af því að hún hafi hitt elsk­huga sinn og vini hans á óþekktum stað og farið með þeim í heitan pott. Umræddir menn eru allir tölu­vert eldri en konan.

Konan birti opin­skáar og slá­andi lýs­ingar á Instagram sem hafa vakið gríð­ar­lega athygli og umræður á Twitter.  Í heita pott­inum áttu menn­irnir að hafa brotið á kon­unni kyn­ferð­is­lega, meðal ann­ars með því að stinga fingrum í enda­þarm hennar. Þeir hafi síðan læst hana inni á her­bergi, látið hana afklæð­ast og haft við hana munn­mök.

Meintir ger­endur eru sagðir valda­miklir í sam­fé­lag­inu, sem og fjöl­skyldu­menn.

Seinna atvikið, sem sama kona lýsir, átti sér stað í golf­ferð í haust, þar sem hún var stödd með mann­inum sem hún átti í ást­ar­sam­bandi við, ásamt hópi af vinum hans. Þar á einn vin­ur­inn að hafa gengið inn á parið í ást­ar­at­lotum. Ást­mað­ur­inn á síðar að hafa fengið þann vin sinn inn á her­bergi til þeirra og boðið honum að snerta kon­una á óvið­eig­andi hátt, í þeim til­gangi að kaupa þögn hans. Báðir eru menn­irnir þjóð­þekktir og vin­ur­inn bæði opin­ber per­sóna og hátt skrif­aður í sam­fé­lag­inu. Tekið skal fram að atburða­rás þessi er sam­kvæmt frá­sögn kon­unnar.

Mannlíf hafði sam­band við vin manns­ins sem konan átti í ást­ar­sam­bandi við, þann sem sagður er hafa gengið inn á þau í fyrr­nefndri golf­ferð. Maðurinn svar­aði því ját­andi, aðspurður hvort hann hefði orðið var við þær sögur sem hefðu verið á sveimi á sam­fé­lags­miðlum.

„Ég hef ekki tíma til að tala um þetta,“ sagði mað­ur­inn og neit­aði að tjá sig um málið.

Mannlíf reyndi ítrekað að ná sam­bandi við mann­inn sem sagður var eiga í ást­ar­sam­band­inu, án árang­urs, en mun halda áfram að reyna að ná tali af honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto