Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Þorgerður Katrín fyrir stóru stundina

Landslið sent í viðræður ef JÁ verður ofan á

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra
Kristrún Frosta­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, Inga Sæland, mennta- og barna­mála­ráð­herra og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra Ganga til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Evr­ópu­sam­bandið Mynd: Facebook/Þorgerður Katrín

Þjóðar­atkvæða­greiðsla um hvort Ísland eigi að taka upp þráðinn og hefja að nýju samninga­viðræður um aðild að Evrópu­sambandinu fer fram um allt land í dag. Um er að ræða einhverja mikil­vægustu atkvæða­greiðslu í utan­ríkismálum þjóðarinnar um árabil. Aðdragandi kosninganna hefur einkennst af harðri en líflegri umræðu þar sem tekist hefur verið á um efnahagslegt öryggi, full­veldið og stöðu íslensku krónunnar. Í opinberri yfir­lýsingu sem Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir utan­ríkis­ráðherra birti í tilefni dagsins, gerir hún upp síðustu vikur sem hún segir hafa verið viðburða­ríkar, gefandi en jafnframt krefjandi. Hún lýsir yfir miklu stolti og ánægju með þá víðtæku samfélags­legu umræðu sem skapast hefur í aðdrag­anda kosninganna.

„Fólk hefur spurt, hlustað, lesið, rökrætt og myndað sér skoðun. Alþjóðamál, staða Íslands í heiminum, full­veldið okkar og ekki síst efnahagslegt öryggi hafa sjaldan fengið jafn mikið rými í almennri umræðu,“ skrifar Þorgerður Katrín og bætir við að þessi umræða sé dýrmæt, óháð því hver niður­staðan verður.

Loforð ríkisstjórnarinnar haldið

Ríkis­stjórn Samfylkingarinnar, Flokks fólksins og Viðreisnar, undir forystu Kristrúnar Frosta­dóttur forsætis­ráðherra, var mynduð í lok síðasta árs með það skýra markmið að leggja ESB-viðræður í dóm kjósenda. Utan­ríkis­ráðherra vísar beint til þess samstarfs og loforðsins sem gefið var í upphafi vegferðarinnar.

„Þegar við Inga og Kristrún lögðum af stað í þessa vegferð lofuðum við einu: að þjóðin fengi að ráða. Við sögðumst treysta fólki til að taka þessa ákvörðun og við höfum staðið við það. Ég er stolt af því.“

Tekist á um vexti, matarverð og krónuna

Í færslu sinni nefnir utan­ríkis­ráðherra helstu efnahags­legu rökin sem verið hafa í brennidepli hjá þeim sem styðja Já-fylkinguna. Hún spyr hvort hægt sé að tryggja íslenskum heimilum og fyrir­tækjum stöðugra umhverfi, lægri vexti og lægri fjármagns­kostnað og hvort ungt fólk eigi að þurfa að sætta sig við dýrustu matar­körfuna ásamt þeim sveiflum sem fylgja litlum gjald­miðli á borð við íslensku krónuna. Þá telur hún mikilvægt að Ísland eignist loksins „sæti við borðið“ þar sem ákvarðanir sem hafa þegar mikil áhrif á Ísland í gegnum EES-samninginn eru teknar. Þorgerður segir að þessum stóru spurningum verði ekki svarað með hræðslu­áróðri heldur með því að mæta til leiks af sjálfs­trausti.

„Samninga­nefndin verður skipuð okkar sterkasta og reynslu­mesta fólki, við sendum landslið út sem mun ekki gefa neitt eftir. Þetta er sú pólitík sem ég trúi á. Ekki að loka dyrum af ótta, heldur opna þær, líta inn og taka síðan upplýsta ákvörðun.“

Ekki kosið um endanlega aðild

Ráðherra áréttar og leggur mikla áherslu á að kjósendur átti sig á því að atkvæði dagsins í dag sé ekki loka­skrefið heldur aðeins upphafið á ferlinu. Kosningin snúist um að kanna grund­völlinn en ekki að ganga beint í sambandið.

„Á morgun [í dag] kjósum við um að fara í samninga­viðræður. Ekki um aðild eða aðlögun. Ef niður­staðan verður já verður önnur þjóðar­atkvæða­greiðsla um aðildar­samninginn sjálfan. Punktur.“

Að lokum dregur hún línu á milli flokks­pólitíkur og hagsmuna landsins og segir að atkvæða­greiðslan snúist hvorki um hana, ríkis­stjórnina né fyrri valdhafa. „Hún snýst um Ísland og hvernig við viljum mæta fram­tíðinni. Við þrjár stóðum við okkar. Á morgun [í dag] er orðið ykkar.“

Kjör­staðir um allt land opna klukkan 09:00 og lýkur kosningu í kvöld. Fylgst verður grannt með talningu og fyrstu tölum jafnskótt og þær berast eftir lokun kjörstaða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning