Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Neytandi vikunnar, Ingibjörg Ágústsdóttir: „Allar glufur nýttar til að græða sem mest á neytendum“

Neytandi vikunna heitir Ingibjörg Ágústs­dóttir og er  52 ára, gift og á tvö börn á unglings­aldri. Hún er fædd og uppalin í einni afskekktustu og fegurstu sveit landsins, Árnes­hreppi á Ströndum, en hef síðan búið á mörgum stöðum, m.a. á Akranesi, Akureyri, í Skotlandi og Belgíu. Hún býr núna í Reykjavík ásamt fjöl­skyldu sinni og starfar sem dósent í ensku við Háskóla Íslands þar sem hún kennir breskar bókmenntir.

Telur þú álagningu verslana sann­gjarna og gerir þú verð­samanburð á vörum og þjónustu?

Nei mér finnst álagning ekki sanngjörn og matvöru­verð á Íslandi er bara rosalega hátt. Stóru matvöru­verslanirnar ættu að borga minna í arð, lækka laun toppanna (sem eru með alltof há laun) og draga úr álagningu, sýna alvöru samfélags­ábyrgð og láta viðskipta­vini njóta þess sem hægt er að spara. Svo virðist aldrei vera hægt að lækka nokkurn hlut í verði þó svo að forsendur gefi tilefni til þess, og allar glufur nýttar til að græða sem mest á neytendum. Svo ég nefni dæmi um okur þá finnst mér verð á mjólkur­vörum, sérstak­lega ostum og þannig vörum, vera alveg út úr kú (pun intended). Það er ekki í lagi að þurfa að borga næstum 800 krónur fyrir dós af rjómaosti. Það er nátt­úrlega engin raun­veruleg samkeppni í gangi milli fram­leiðenda mjólkur­vara og MS einokar markaðinn. En þegar kemur almennt að matvöru þá geri ég stundum verð­samanburð milli Krónunnar og Bónus (ég versla oftast í Krónunni) og þar er kannski í mesta lagi ein króna sem munar. Það er ekki marktækur verðmunur og alls ekki til marks um neina alvöru samkeppni. Ég er þó alltaf í mesta sjokkinu yfir matvöru­verði hér þegar ég ferðast erlendis og bregð mér í matvöru­verslun þar.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég hef gert það með því að versla kjöt beint frá býli, lengi sótti ég það og vann sjálf (gerði gúllas og hakk og fleira) en hef ekki lengur aðstöðu til þess. Núna kaupi ég lambakjöt og ærkjöt af bónda í sveitinni minni, kjötið þaðan er langbest – og fylli frystinn á haustin. Að auki reyni ég að kaupa þær matvörur sem ég nota mikið á tilboði þegar þannig er í boði. Ég kaupi tómata í dós og kókos­mjólk í dós alltaf í Costco því þar fær maður margar dósir í pakkningu sem er miklu ódýrara en að kaupa eina og eina í Krónunni/Bónus. Ég nota þessa vöru mjög mikið í matargerð svo það borgar sig fyrir mig. Eins hefur það gefist vel að gera matseðla og skipuleggja fyrirfram hvað á að vera í matinn fyrir vikuna – vanda­málið er bara að ég er ekkert alltaf mjög góð í að skipuleggja mig svo að það detta oft margar vikur niður og það þýðir fleiri ferðir í búðina! Annars fékk ég mjög gott matseðla­skipulag í Excel skjali inn á Facebook grúppunni Sparnaðar tips sem Vilborg Davíðs­dóttir rithöfundur var svo indæl að deila með okkur hinum, mæli með því að skoða það. Mér finnst líka gott að panta 2-3 rétti frá Eldum rétt við og við, það gerir skipulagið auðveldara þá vikuna og sparar mér jafnvel einhvern pening (eða að minnsta kosti minnkar matarssóun) því maður fær bara nákvæmlega þau innihalds­efni sem þarf í réttina frá þeim.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Við hjónin eyðum hellings tíma í að þvo plast – við endur­nýtum plastpoka aftur og aftur sem dæmi. Ekkert mjög skemmtilegt en nauðsynlegt að mínu mati. Við flokkum ruslið, erum með sérstakar tunnur fyrir plast, pappír, gler og dósir. Mér finnst mikilvægt að reyna að leggja sitt af mörkum fyrir umhverfið.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Bækur eru minn Akkilesar­hæll (kaupi aldrei nóg af þeim), og þeð er erfitt að standast það að kauða góðan kaffi latté bolla á hverfis­kaffihúsinu.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já hún gerir það. Eins og ég sagði, þá flokkum við ruslið heima fyrir og við setjum föt og annað nýtilegt dót sem við notum ekki lengur í nytjagám. Við ætlum lika að skipta yfir í rafmagnsbíl sem fyrst – fyrir umhverfið en líka til að þurfa ekki að eyða svona miklum pening í bensín.

Hér að neðan deilir hún uppskrift með lesendum:

Þessi gúllas­súpa er rosalega góð en þetta er uppskrift sem ég þróaði sjálf þegar ég átti fullt af ærgúllasi í frysti og þurfti að finna fjöl­breyttari leiðir til að elda það.

600 gr ærgúllas
1 ds niður­soðnir tómatar, hakkaðir
1 ds kókos­mjólk
500-600 ml sjóðandi vatn
1 msk Oscar grænmetis­kraftur
½-1 msk Oscar lamba­kraftur
4 gulrætur, skornar í bita
1 laukur, saxaður smátt
4 hvítlauksrif, söxuð smátt
1-2 sentimetra bútur ferskt engifer, saxað smátt
1-2 tsk arabískt kjúklinga­krydd, eða eftir smekk
1-2 tsk Madras karrí, eða eftir smekk
Salt
Svartur pipar
Smávegis chilli explosion flögur (frá Santa Maria)
1-2 dl rjómi

Laukur, hvít­laukur og engifer mýkt í olíu í potti. Gúllasið svo steikt með þar til brúnað. Tómatar, kókos­mjólk og sjóðandi vatn sett út í pottinn, ásamt kryddi. Láta þetta malla í góðan tíma og svo er gulrótum bætt út í þegar 20-30 mín eru eftir af eldunar­tímanum. Gúllasið þarf að sjóða amk 1 klukku­stund til að vera mjúkt, og helst lengur en það. Rjómanum bætt út í súpuna í lokin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning