Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Páll Rósinkranz handtekinn á Ísafirði árið 1993: „Beið bara eftir því að vera tekinn í rass“

Ísafjörður – myndin tengist fréttinni ekki beint –
Ísa­fjörður – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint – Mynd: wikipedia

Stór­söngvarinn Páll Rósinkranz lenti í slags­málum á Ísafirði árið 1993.

„Hjá okkur voru engar heima­sætur. Það var enginn afbrýðisamur og enginn að stinga undan neinum. Það eina sem heima­mennirnir vildu varað komast í partí,“ sagði Þorsteinn Kragh umboðs­maður Jet Black Joe í viðtali við Pressuna árið 1993. Þorsteinn og Páll Rósinkranz voru hand­teknir eftir slagsmál við Ísafirðinga eftir tónleika. Vakti það athygli fjölmiðla á þeim tíma að táragas var notað við lögreglu­aðgerðirnar til að stoppa slags­málin.

„Þetta var sjálfs­vörn, þótt við séum hins vegar ekki alsaklausir. Það er ýmislegt sem hefði mátt betur fara hjá lögreglunni á ísafirði, þótt Ísfirðingar séu upp til hópa ágætis­fólk,“ sagði Þorsteinn og að þeir Páll hefðu verið nokkuð slasaðir eftir átökin.

„Við höfðum ekki í hyggju að halda neitt partí. Það stóð til að fara snemma að sofa á sunnudags­kvöldið, því við vorum á heimleið snemma daginn eftir þarsem við áttum að hitta Steve nokkurn Louis, umboðs­mann TKO-fyrir­tækisins, vegna hugsanlegrar samnings­gerðar. Heima­mennirnir ruddust að okkur og sögðust vera búnir að dæla í okkur brenni­víni alla helgina, sem er ekki rétt. Nú vildu þeir að við héldum partí, en af því við neituðum þeim hótuðu þeir okkur öllu illu. Með herkjum tókst mér þó að koma þeim út,“ sagði umboðs­maðurinn knái. 

„Þrátt fyrir að Guðmundur Fylkisson lögreglu­maður stæði þarna fyrir utan sáum við hann aldrei gera nokkurn skapaðan hlut. Hann bara stóð þarna fyrir utan og glotti. Nokkru síðar tekur einn heima­manna upp grjót og hendir í gluggann, sem brotnar, og veldur því að trommarinn skerst á hendi. Í stað þess að hlaupa út og ráðast að þeim hringi ég í lögregluna, kynni mig og bið um aðstoð. Lögreglu­maðurinn sem ég talaði við segir mér að láta vinnandi fólk í friði og skellir á. Ég hringi aftur og fer aftur fram á aðstoð og bið um nafn hans. Eftir tiltal segir hann loks til nafns; segist heita Ögmundur Jónsson, fer með sömu rulluna og skellir aftur á mig. Að ég hafi hringt og beðið um aðstoð kemur hins vegar ekki fram í skýrslum lögreglunnar. Ögmundur viðurkenndi þó fyrir rannsóknar­lögreglu­manninum að ég hefði hringt í sig.“

„Þetta leiddi til þess að við gripum í lauslega hluti, eins og komið hefur fram, og óðum út. Semsagt vörðumst hnífi og grjóti með tré að vopni,“ og á einhverjum tíma­punkti fékk Þorsteinn grjót­hnullung í brjóst­kassann.

„Allt verður svart,“ hélt Þorsteinn áfram. „Enda sjö til átta manns í slags­málum: Ég, Páll og Sigurður Már, rótari hljóm­sveitarinnar, endum í slags­málum við heima­mennina, sem voru fjórir — ekki þrír eins og fréttir hermdu —, fjórði maðurinn kom þeim til hjálpar aðeins síðar. Allt í einu heyri ég nafnið mitt kallað og lít upp. Þá er sprautað á mig táragasi. Svo eru kölluð nöfn Páls og Sigurðar Más og líka sprautað á þá táragasi. Táragasi var hins vegar ekki sprautað á heima­mennina.“

Eftir þetta leystust slags­málin upp og Þorsteinn og Páll hand­teknir og færðir til yfirheyrslu. Við yfirheyrslu var þeim tilkynnt að heima­maður hefði kinnbeins­brotnað og Þorsteinn og Páll yrðu kærðir fyrir það. Þorsteinn sagði að þeir hefðu ekki átt sök að máli og að maðurinn hefði mögulega kinnbeins­brotnað við fall. Meðan Þorsteinn var yfir­heyrður var Páll látinn sitja í fanga­klefa.

„Þetta var eins og að vera á geðsjúkrahúsi; ekkert nema hvítir veggir. Maður beið bara eftir því að vera tekinn í rass þarna,“ sagði Páll Rósinkranz um málið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.
Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni