Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Femínistar segja ekki þverfótað fyrir pervertum á Kótelettunni

Femíníski aðgerðar­hópurinn Öfgar segja á Twitter að ótrúlegur fjöldi meintra kynferðis­brotamanna muni stíga á stokk á fjölskyldu­hátíðinni Kótelettan á Selfossi. Kótelettan, sem er jafnframt grill­veisla og tónlistar­hátíð, fór fram nú um helgina. Öfgar segja á bilinu 10 til 15 meinta gerendur meðal skemmtikrafta og þeir hafi verið fleiri en tónlistakonurnar á hátíðinni.

Á Twitter segja þær: „Fjöldi meintra gerenda sem eru að spila á Kótelettunni þessa helgi eru fleiri en heildar­fjöldi kvenkyns tónlistar­fólks á hátíðinni. Það eru 12 mánuðir síðan þjóhátíðar­nefnd klúðraði sínum málum. Við hvetjum tónlistar­fólk að taka afstöðu og neita að spila með meintum gerendum.“

Engin nöfn eru nefnd en ljóst er að þetta setur alla karlkyns tónlistar­menn sem spiluðu á hátíðinni í erfiða stöðu. Slíkur er fjöldi gerenda samkvæmt hópnum að ef einungis er horft á tölfræði þá er um helmings­líkur á að hver tónlistar­maður sé meintur kynferðis­brotamaður. Það skýrir ef til vill næsta tíst hópsins: „Vinsamlegast ekki vera með getgátur um ofbeldis­menn.“

Líkt og fyrr segir þá gefur hópurinn ekki meira upp en þann fjölda sem ku hafa spilað um helgina. „Einhversstaðar um 10-15 manns,“ segir hópurinn. Sumum þykir óþægilegt að þurfa nú að gruna annan hvern mann, líkt og ein kona sem skrifar: “

„Ég vildi að maður vissi hverjir þetta væri svo ég sé ekki að gruna annan hvern mann og ef ég vissi myndi ég hætta að hlusta á tónlistina þeirra og já, svo gæti ég verið að fylgjast með einhverjum þeirra á insta.“

Ólöf Tara Harðar­dóttir, ein af meðlimum Öfga, svarar þessu og segir: „Þú getur byrjað á google. Það eru þó nokkurn nöfn sem hafa farið í opinbera umræðu. Pössum svo að krefja ekki þolendur um að gefa leyfi til að hvísla nöfnum gerenda sinna.“

Hér fyrir neðan má finna alla tónlistar­menn sem stígu á stokk um helgina. Listinn er í tímaröð, eftir því hvenær viðkomandi fór á svið.

Á föstudag:

DJ Dóra Júlía

DJ Rikki G

Moskvít

Moses Hightower

Stjórnin

Aron Can

XXX Rottweiler Hundar

Herra Hnetu­smjör

Á laugardag:

DJ Nokto

Moskvít

Sigga Ózk

Stuðmenn

FM95BLÖ

Stuðla­bandið

Helgi Björns

Stebbi Hilmars

Frikki Dór

Páll Óskar

Birnir

Birnir

ClubDub

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá