Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fannar vonar að fyrirheit Samherja gangi eftir í Grindavík: „Þetta kemur svona flatt upp á okkur“

Í gær bárust fregnir af því að Síldar­vinnslan, sem félög í eigu útgerðar­fyrir­tækisins Samherja eiga ráðandi hlut í, sé komin á fremsta hlunn með að kaupa útgerðar­fyrirtækið Vísi í Grindavík. Kaupverð er 31 milljarður króna. Fullyrt hefur verið að Vísir og kvótinn verði áfram í Grindavík og hagsmunir bæjarbúa í forgrunni. Stjórn Vísis muni sitja áfram og fyrir­tækið verða dóttur­félag Síldar­vinnslunnar. Bæjar­stjóri Grinda­víkur segir söluna hafa komið flatt upp á sig, en vonar að fyrirheit gangi eftir.

Kaup Sílarvinnslunnar á Vísi eru háð samþykki Samkeppnis­eftirlitsins, að hluthafar Síldar­vinnslunnar samþykki kaupin og því að áreiðanleika­könnun skili fullnægjandi niður­stöðu. Gangi það eftir munu fisk­veiði­heimildir Síldar­vinnslunnar fara yfir það tólf pró­senta hámark sem hver útgerð má sam­kvæmt lögum eiga af úthlut­uðum kvóta.

„Það sem skiptir mestu máli fyrir bæjar­félagið og íbúana er að starfsemin þarna haldi áfram hjá þessu öfluga og góða fyrirtæki sem Vísir er, og verður núna dóttur­félag,“ segir Fannar Jónasson, bæjar­stjóri í Grindavík.

„Það er það sem auðvitað skiptir bara öllu máli fyrir okkur og miðað við það sem við heyrum, og komið hefur fram í fréttum líka, er að það standi til að efla starfsemina á svæðinu, meðal annars með fiskeldi á landi. Ef þau áform ganga eftir og fyrir­tækið heldur áfram að sinna byggðar­laginu og landinu í heild sinni, eins og gert hefur verið, þá getum við svo sem ekki gert neinar athuga­semdir, enda hefur bærinn enga aðkomu að þessu máli á nokkurn hátt.“

Treystir þú því að þetta gangi eftir?

„Það verður tíminn auðvitað bara að leiða í ljós, hvernig framtíðin mun spilast áfram en ég hef enga ástæðu til þess á þessu stigi, fyrirfram, að vantreysta því sem sagt hefur verið og þeim áformum sem uppi eru. Þetta er auðvitað bara alveg nýtt fyrir okkur. Ég frétti þetta fyrst í gær, þannig að þetta kemur svona flatt upp á okkur, en við erum svona smám saman að fá frekari upplýsingar hjá stjórn­endum fyrir­tækisins og nýjum eigendum, og gömlu eigendunum líka. Þeir eru fullir bjartsýni, þannig að við verðum bara að vona að það rætist allt saman.“

Finnst þér þetta vera skellur fyrir bæjarbúa í Grindavík?

„Nei, ég held bara að öll óvissa geti verið þess valdandi að fólk óttast kannski að eitthvað alvarlegt eða neikvætt kunni að vera framundan. En við höfum engar forsendur til þess að ætla að svo verði. Við verðum að treysta því bara að þessi áform standist. Það er ekki verið að gera þetta nema trúlega vegna þess að fyrir­tækið er bara mjög sterkt, með allra öflugustu útgerðar­fyrirtækjum á landinu og eitt allra tækni­væddasta fisk­vinnslu­fyrirtæki landsins að auki. Þannig að það þykir örugglega mikill fengur í því að fá þetta fyrirtæki inn í þetta öfluga fyrirtæki sem Síldar­vinnslan er.“

Fannar segir líklegt að ástæðan fyrir kaupunum séu góðar aðstæður í Vísi og Grindavík, en bærinn sé til að mynda vel stað­settur land­fræðilega. „Tækja­búnaður sem þar er til staðar er með því allra besta sem fyrir­finnst. Það er hvergi meiri þorskafla landað í öðrum höfnum, annarsstaðar á landinu, heldur en í Grindavík, þannig að við erum mjög öflugt sveitar­félag og vonum að það verði bara áfram.“

Nú hefur Samherji ákveðna sögu þegar kemur að loforðum sem þessum.

„Já, já. Fólk getur svo sem haft sínar hugmyndir um það hvernig þetta kunni að gerast hér. Við verðum bara að láta tímann skera úr um það, við höfum engar aðrar forsendur. Bærinn mun bara leggja sitt af mörkum, framvegis sem hingað til, til þess að reyna að gera aðstæður sem allra bestar hvað varðar sjávar­útvegs­fyrirtæki, bæði varðandi landvinnu og ekki síst höfnina okkar, sem er mjög góð nú þegar, en við höfum verið að vinna að því undan­farin mörg ár og munum gera enn betur í þeim efnum. Við höfum átt í góðum viðræðum við Vega­gerðina um það og munum halda því áfram, og kannski bara með auknum krafti þegar það liggur fyrir að það geti vel verið að starfsemin þarna verði efld og fleiri skip sem landa. Auðvitað vonumst við til þess að það verði.

Hefur þú sjálfur rætt við einhvern frá Síldar­vinnslunni og Samherja?

„Nei. Ég frétti þetta bara frá eigendum Vísis í gær, sem höfðu samband við mig og bæjar­yfirvöld. Þannig að við höfum ekki rætt við nýja eigendur nema þá óformlega og síðan er held ég tíu mánaða bið eftir því að Samkeppnis­eftirlitið muni staðfesta þessi kaup. Þannig að það er ekkert sérstakt að gerast. Það eru sömu lykil­stjórnendur hjá Vísi og verið hefur, og sami forstjóri sem verður áfram og mikill mannauður þarna á svæðinu. Þannig að Vísir verður, eins og hefur komið fram, dóttur­félag og heldur bara sínu striki. Framkvæmda­stjórinn verður þarna áfram og allir lykil­stjórnendur og þarna eru einhver 250 ársígildi starfs­manna. Það er engin breyting þessa dagana.“

„Þetta er bara nýtt fyrir okkur og við höfum engar forsendur til annars en að bara treysta því og trúa sem sagt hefur verið um áfram­haldandi uppbyggingu. Ég held það og trúi því. Þetta vonandi verður til góðs fyrir bæinn,“ segir Fannar að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá