Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Rakel verður deildarforseti og stjórnarmeðlimur

Hún býr yfir víðtækri reynslu úr atvinnu­lífinu

Dr. Rakel Heiðmarsdóttir
Dr. Rakel Heið­mars­dóttir Mynd: Háskólinn á Bifröst

Dr. Rakel Heið­marsdóttir hefur verið ráðin deildar­forseti Viðskipta­deildar Háskólans á Bifröst. Samhliða starfinu tekur hún sæti í framkvæmda­stjórn háskólans. Greint er frá ráðningunni í tilkynningu frá Bifröst.

Rakel lauk doktors­prófi í ráðgjafar­sálfræði frá University of Texas at Austin árið 2002, en hún hlaut Fulbright-styrk til námsins. Á árunum 2001 til 2002 sinnti hún jafnframt tólf mánaða rannsóknar­verknámi við University of California, Berkeley.

Hún býr yfir víðtækri reynslu úr atvinnu­lífinu og hefur meðal annars stýrt mannauðs­málum og setið í framkvæmda­stjórnum Norðuráls og Bláa lónsins. Þá starfaði hún hjá Garra, þar sem hún gegndi síðustu árin stöðu aðstoðar­framkvæmda­stjóra.

Rakel hefur einnig mikla reynslu af kennslu og komið að háskóla­kennslu við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og University of Texas. Haustið 2024 var hún fastráðin lektor við Viðskipta­deild Háskólans á Bifröst. Auk þess hefur hún sinnt stjórnunar- og mannauðs­ráðgjöf fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir, rektor Háskólans á Bifröst, fagnar ráðningunni. Rakel tók tíma­bundið við starfi deildar­forseta síðastliðið vor og segir Ólína hana hafa gegnt því með ágætum. Hún kveðst fullviss um að reynsla og þekking Rakelar muni nýtast bæði Viðskipta­deildinni og háskólanum í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum