Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Mannlífið: Diljá læknaðist af sviðskrekk með kirkjukórnum: Þjáðist af ofsahræðslu við töluna 7

Gestur Mann­lífs­ins er Eurovision­stjarnan Diljá Pét­urs­dóttir. Strax sem barn varð það draumur hjá henni að syngja í Eurovision og fyrsta fyr­ir­myndin var Jóhanna Guðrún. Þó hún hafi ekki kom­ist upp úr und­ankeppn­inni þetta árið þá var frammi­staða hennar bæði ytra og í keppn­inni hér heima mögnuð.

Hún segir sjálf að hún geti ekki verið óánægð með úrslitin því hún hafi und­ir­búið sig eins vel og hægt var og skilað sínu.

Hún minn­ist á það að fyrir aðeins um ári síðan var hún eins slæm af sviðs­skrekk og hugs­ast getur ,,Ég hef verið að syngja og koma fram mjög reglu­lega núna í nokkur ár og eig­in­lega bara út af kórnum mínum fæ ég mikið af tæki­færum til að koma og syngja ein­söng, fronta kór­inn minn, þannig að ég hef verið í mik­illi þjálfun að koma fram og það hefur alltaf verið mjög erfitt fyrir mig því ég var með lam­andi kvíða en svo var bara eins og ég hafi fengið brain damage“.

Hún lýsir því þannig að það hafi verið eins og ein­hver hafi stutt á hnapp og þar með hafi kvíð­inn sem fylgdi því að koma fram gufað upp.

Hún talar um að sem ung­lingur hafi hún verið erfið, þó kannski ekki eins og maður ímyndar sér í fyrstu, en hún var í fim­leikum og þurfti að takast á við haus­inn á sjálfri sér og til­greinir til dæmis við­horf til matar­æðis. Hún var til­finn­inga­rík, upp­lifði fyrstu alvöru ást­ar­sorg­ina í 8. bekk og þegar hún svo sleit kross­band þá fór allt í skrúf­una, eins og hún orðar það, því hún sá fyrir sér feril í fim­leikum. Í kjöl­farið þró­aði hún með sér þrá­hyggjuröskun og heilsu­kvíða, t.a.m. þjáð­ist hún af ofsa­hræðslu við töl­una 7 en áhuga­vert var að hún var númer sjö í röð­inni í Eurovision!

Hún telur að kirkju­starfið, kór­inn og heilsu­ræktin hafi mikið hjálpað sér að kom­ast yfir átökin sem hún átti við sjálfa sig.

For­eldrar Diljár reka Atlas end­ur­hæf­ing­ar­stöð, faðir hennar er sjúkra­þjálf­ari og móðir hennar sinnir störfum tengdum rekstri stöðv­ar­innar. Hún er sjálf að læra sjúkra­þjálfun í Háskóla Íslands og hefur tölu­vert unnið sem mót­töku­rit­ari á stöð for­eldra sinna en hún upp­lifir mik­inn inn­blástur við það að sjá þann bata sem fólk fer í gegnum við end­ur­hæf­ingu.

Diljá hefur nóg að gera í tón­list­inni og margt framundan bæði hjá henni sjálfri og svo hjá hljóm­sveit­inni hennar Midnight Libr­arian, en áhuga­samir geta kynnt sér efni þeirra sveitar á Spotify.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027