Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Jimmy Carter er á lokametrunum: „Það er líklegra að ég missi afa áður en ég missi ömmu“

Jimmy og Roselynn Carter
Jimmy og Roselynn Carter

Jimmy Carter, fyrrum forseti Banda­ríkjanna og eiginkona hans, Rosalynn, eru á „síðasta kafla“ lífs síns, samkvæmt barna­barni þeirra.

Tilkynnt var í febrúar að hinn 98 ára gamli Jimmy Carter, hefði ákveðið að þiggja heima­hjúkrun á heimili sínu í Plains, Georgiu, eftir að hafa þurft ítrekað að heimsækja sjúkrahús vegna ýmissa meina.

„Hann er ennþá Jimmy Carter,“ sagði Josh Carter í viðtali við PEOPLE í gær. „Hann er bara þreyttur. Ég meina, hann er næstum því 99 ára gamall, en hann skilur fullkomlega [hversu margar árnaðar­kveðjur hann hefur fengið] og hefur fundið fyrir kærleikanum.“

Þremur mánuðum eftir að tilkynnt var um heima­hjúkrun forsetans fyrr­verandi, var eiginkona hans, Roselynn Carter, greind með heila­bilun.

„Hún veit enn hver við erum, svona oftast, að við séum fjöl­skylda,“ sagði Josh og bætti við að það hafi verið Roselynn sem ákvað að tilkynna um greininguna.

Bætti hann við að það væri „örugglega erfitt“ fyrir afa sinn að fylgjast með minni eiginkonu sinnar fjara út en „þau hafa upplifað allt sem hægt er að upplifa saman. Mér finnst það svo fallegt að þau séu enn saman.“

„Amma er enn fær um að mynda nýjar minningar,“ bætti Josh við en hann segir að góður nætur­svefn hjálpi gegn einkennunum.

Hjónin, sem eiga fjögur börn, 12 barnabörn og 13 barna­barnabörn, eru reglulega í fylgd fjölskyldu­meðlims eða umönnunar­aðila allan daginn.

Josh segir að amma sín og afi séu orðin hljóðari, sem geri það að verkum að aðrir fjölskyldu­meðlimir þurfi að hafa ofan af fyrir hjónunum. „Amma og afi hafa alltaf verið skemmtikraftarnir í fjöl­skyldunni,“ sagði Josh. „En nú er það eiginlega í okkar verka­hring að skemmta fólki. Þetta er öðruvísi, þetta eru öðruvísi tímar.“

Carter-hjónin fögnuðu 77 ára brúðkaups­afmæli í síðasta mánuði og í síðustu viku fagnaði Rosalynn 96 ára afmæli sínu. Öll Carter-fjöl­skyldan undirbýr sig nú fyrir hvað sem koma skal í náinni framtíð.

„Það er líklegra að ég missi afa áður en ég missi ömmu,“ sagði Josh og hélt áfram: „Hann fær heima­hjúkrun en hún ekki, og þetta er einföld stærð­fræði. Það er greinilegt að við erum á loka­kaflanum.“

Jimmy Carter er sá forseti Banda­ríkjanna sem náð hefur hæsta aldrinum en hann var forseti eitt tímabil, frá 1976 til 1981, þegar Ronald Reagan tók við völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár