Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Lygar og svik við fólkið í landinu

Sea Coastline of East Iceland. Horizontal shot
Sea Coastline of East Iceland. Horizontal shot

Einu rökin fyrir því sem ég finn fyrir því hvers vegna þú og þínir líkir uppfyllið ekki þarfir þjóðarinnar við nýtingu á sínum eigin auðlindum í gegnum 48 daga veiði­kerfi eru engin nema mann­vonskan í sinni tærustu mynd.

Sjávar­útvegs­ráðherra er tilbúin að stökkva fram á vígvöllinn og segja hið svokallaða 48 daga strandveiði­kerfi full reynt í óþökk við flest fólk sem starfar í því. 48 daga kerfi sem var aldrei neitt 48 daga kerfi vegna vald­níðslu hennar og fl. stjórn­málamanna gegn þjóð sinni og þjónkun þeirra við SFS sem er ekki þjóðin.

Á meðan mokar hún og hennar líkir byggðar­kvótanum úr almenna byggðar­kvóta­kerfinu í stór­útgerðina sem þarf ekkert á honum að halda til að lifa. Byggðar­kvóta sem þjóðin þarfnast til að tryggja hér 48 daga á hvern einasta strand­veiðibát á landinu og til þess að bæta hér búsetu­skilyrði allt í kringum landið, lífsgæði og atvinnu­stig og í kerfi sem erfitt er að misnota. Kerfi sem er almennt en ekki kerfi sem er sniðið fyrir misnotkun eins og almenna byggðar­kvótakerfið er og örugglega eitthvað af sértæka líka.

Hvað finnst henni þá um allt hitt kerfið sem átti að byggja hér upp fiskistofna en hefur ekki gert það í 40 ár. Fiskistofnar eru annað hvort útdauðir eða þá við það að verða útdauðir samkvæmt mælingum Hafró. Finnst henni það kerfi þá ekki full reynt þó svo sú tilraun sé búin að standa í um 40 ár með minna en engum árangri og hefur kostað þjóðina svo miklar fjárhæðir að færustu hagfræðingar heims gætu ekki reiknað sig niður á þá tölu …

Kosninga­loforð Vinstri Grænna voru 48 daga strandveiði­kerfi, auka hlut veiði­réttar þjóðarinnar með því að stækka 5,1 % pottinn svo um munar. Lygar og svik við fólkið í landinu til að ná til atkvæða þeirra fyrir kosningar kallast ekkert annað en landráð á góðri íslensku. Í raun eru fiskveiði­kerfi okkar Íslendinga ekkert nema landráð og þjófnaður frá fólkinu í landinu á auðlind sem fólkið í landinu á saman. Veiði­réttur sem tekinn var frá fólkinu í landinu og fært örfáum í nafni uppbyggingar fiskistofna sem hefur sannarlega ekki tekist. Svandís Svavars­dóttir, þú veist alveg hvers þjóð­félagið þarfnast. Það eru 48 dagar á hvern einasta strand­veiðibát í kringum landið án nokkurra svæða­skiptingar. Til þess að þessir dagar verði nýttir í hverri sjávar­byggð þegar fiskur er á þeirra heimaslóð þá eiga bátarnir að fá að veiða daga sína allt árið eða þegar þeim hentar það. Þá myndi kerfið virka 100% sé horft til byggða­sjónarmiða og 100% sé horft til mann­réttinda og lífsgæða­uppbyggingar allt í kringum landið okkar.

En nei, þú kýst að vera undir pilsi einhvers annars en þjóðarinnar, einhvers sem óskar sér þess að smábáta­útgerð leggist alfarið af í kringum landið og að mann­réttindi okkar verði fótur troðinn og að fólkið í landinu geti bara étið skít svo að einhver sem er feitur af aurum verði feitari.

Við erum fisk­veiðiþjóð og fólkið í fiskveiðsamfélögum þarfnast fisk­veiðiréttar, annars þrífst fólkið ekki og samfélaginu hnignar. Fisk­veiðiréttar sem var rænt frá þjóðinni og færður öðrum. Hand­færaveiðar eru ekki orsaka­valdur á hnignun fiskistofna og eiga ekkert skylt með veiði­ráðgjöf fyrir tortímandi veiðar­færa.

Einu rökin fyrir því sem ég finn fyrir því hvers vegna þú og þínir líkir uppfyllið ekki þarfir þjóðarinnar við nýtingu á sínum eigin auðlindum í gegnum 48 daga veiði­kerfi eru engin nema mann­vonska í sinni tærustu mynd …

Vigfús Ásbjörnsson

Strandveiði­sjómaður á Horna­firði

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað