Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ólafur bundinn og járnaður í fangaklefa á Selfossi: „Greip í punginn á öðrum lögregluþjóninum“

Selfoss – myndin tengist fréttinni ekki beint
Selfoss – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Djammið hjá Ólafi Björns­syni endaði í fanga­klefa árið 1993.

Laugardags­kvöld eitt árið 1993 var Ólafur Björnsson að skemmta sér ásamt tveimur vinum sínum. Því miður fyrir hann var hann látinn gista fangklefa hjá lögreglunni á Selfossi. Ólafur lýsti því í viðtali við DV árið 1993 að hann hafi verið beittur ofbeldi í fanga­klefanum. Lögreglan var ósammála þessari stað­hæfingu Ólafs.

„Það komu tveir hraustlegir lögreglu­menn inn í klefann og réðust að mér. Ég tók á móti en þetta endaði með því að ég missti stóra hárflygsu af höfðinu, var hand­járnaður og er nú óvinnufær vegna eymsla í öxlum þar sem snúið var upp á hand­leggina á mér. Ég hélt að menn með læti í klefunum væru látnir í friði þar sem þeir gefast vanalega upp og sofna en það á víst ekki við um mig,“ sagði Ólafur Bjömsson við DV um atvikið

Um hvernig hann endaði í fang­klefanum til að byrja með sagði Ólafur:

„Við vorum að skemmta okkur á laugardags­kvöldið, við höfðum drukkið. Við stoppuðum lögreglubíl og báðum lögguna að keyra okkur á skemmtistað. Löggan keyrði okkur hins vegar beint á stöðina þar sem nöfnin okkar voru tekin niður. Lögreglumennimir vissu hvar ég á heima og í einhverjum hálf­kæringi nefndi ég því annað heimilis­fang. Það þoldu þeir ekki og mér var stungið inn. Það var heldur snubbóttur endir á gleðinni og barði ég því hressilega á dymar og æpti dágóða stund,“ og komu lögreglu­menn inn í klefa hans í fram­haldinu. 

„Það sýnir sig að það vantar töluvert hár efst á hvirfli sem hefur verið rifið úr. Í ljós kemur allnokkur bólga og mar aftan á öxlum,“ sagði í skýrslu læknis um ástand Ólafs eftir atvikið.

Lögreglan á Selfossi leit málið ekki alvarlegum augum og vildi meina að Ólafur gæti sjálfum sér um kennt.

„Það voru teknir þrír piltar úti á götu þar sem þeir voru búnir að loka götunni með búkkum og gangbrautar­hellum. Þeir voru allir ölvaðir en einn sýnu mest, Ólafur. Sá vissi ekki einu sinni hvar hann átti heima og sneri bara út úr og brúkaði munn. Mér fannst því að hann ætti að fá að hvíla sig hjá okkur enda hafði hann staðið fyrir því aö loka götunni. Þá varð drengurinn trítilóður, lamdi og barði og greip í punginn á öðrum lögreglu­þjóninum sem kom í klefann. Sá bjargaði sér síðan með því að taka í hárið á honum. Það urðu þarna mikil átök sem enduðu með því að maðurinn var yfir­bugaður, járnaður og bundinn. Þegar hann svo róaðist voru tekin af honum böndin, hann lagður til á dýnu og teppi breitt yfir. Það er allt í lagi þó menn skemmti sér og smakki vín en þeir verða að bera ábyrgð á því sem þeir gera,“ sagði Guðmundur Hartmannsson, varð­stjóri hjá lögreglunni á Selfossi, í viðtali við DV um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

„Það er allt of oft rætt um málefni þessa hóps án þess að rætt sé við fólkið sjálft“
Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni