Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Katrín biður um undanþágu frá lögum um hagsmunaárekstra vegna glæpasögu

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra, hefur óskað eftir undanþágu frá lögum um varnir gegn hagsmuna­árekstrum í Stjórnar­ráði Íslands í þeirri von að geta sinnt auka­starfi samhliða ráðherra­embætti sínu. Lögin kveða á um að störf æðstu stjórn­enda, sem og aðstoðar­manna ráðherra, séu full stöðu­gildi og óheimilt sé að sinna öðrum störfum samhliða þeim og tóku gildi í byrjun árs 2021. Kjarninn greinir frá þessu.

Katrín hefur óskað eftir undan­þágunni til þess að skrifa glæpasögu. Bókina ætlar hún, fái hún til þess leyfi, að skrifa með Ragnari Jónassyni, metsölu­höfundi á sviði glæpa­sagna. Ekki er um að ræða nýja hugmynd, því eins og segir í grein Kjarnans greindi Ragnar sjálfur frá verk­efninu í viðtali við breska dagblaðið The Times fyrir um ári.

Ráðuneyti Katrínar sjálfrar annast eftirlit með lögunum og því þarf hún að leggja ákvörðunina í hendur annars ráðherra, sem kemur þá til með að skera úr um það hvort beiðni Katrínar um undanþágu verði samþykkt. Bjarni Benediktsson, fjármála­ráðherra, fékk málið í hendurnar á ríkis­stjórnar­fundi í morgun en ákvörðun hans liggur ekki fyrir.

Í lögum um varnir gegn hagsmuna­árekstrum í Stjórnar­ráði Íslands segir að ráðherra sé heimilt að veita embættis­mönnum undanþágu vegna auka­starfa sem teljast til „mannúðar­starfa, kennslu- eða fræði­starfa, vísinda­rannsókna, list­sköpunar eða annarra og tilfall­andi starfa, svo fremi að það hafi ekki áhrif á störf viðkomandi í Stjórnar­ráði Íslands“. Laun vegna starfanna verða að teljast innan hóflegra marka, þótt engin sérstök upphæð eða viðmið sé tilgreint.

Afgreiða skal beiðni um slíka undanþágu innan við 30 dögum frá því að hún berst. Niður­staða Bjarna ætti því að liggja fyrir innan tíðar, en ef marka má skilgreiningar á samþykktum starfs­sviðum verður að teljast líklegra en ekki að undanþágan verði veitt.

Kjarninn fjallar nánar um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Viðbragðsaðilar voru sendir á vettvang
Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá