Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Segir borgarstjóra flokka íbúa eftir arðsemi

„Virði manneskju verður aldrei bundið við skatt­greiðslur“

Sanna Magdalena gagnrýnir ummæli borgarstjór
Sanna Magda­lena gagn­rýnir ummæli borg­ar­stjór Mynd: Samsett mynd

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgar­fulltrúi Vinstrisins, dregur upp dökka mynd af forgangs­röðun og viðhorfum meirihlutans í Reykjavík í nýjum skoðana­pistli.

Tilefnið er viðtal við Hildi Björns­dóttur borgar­stjóra í þættinum Spursmál þann 4. september sl., þar sem hún ræddi um tekju­lægstu hópa borgarinnar sem fólk sem gæti ekki „staðið undir sér“ og lagði áherslu á að laða þyrfti tekju­hærri hópa til að halda uppi skatt­kerfinu.

Í grein sinni, Excel-væðing mann­lífsins á Vísi, gagnrýnir Sanna þessa nálgun harðlega og segir það lýsa takmark­andi sýn að meta íbúa eingöngu út frá fjárhags­legu framlagi.

Enginn verðmætasköpun án láglaunastétta

Sanna bendir á að háar tekjur ákveðinna hópa verði ekki til í tómarúmi. Að baki hverri krónu standi fjöldi fólks í mikil­vægum grunn­störfum sem haldi samfélaginu gangandi svo sem starfs­fólk í skólum, ræstinga­fólk og umönnunar­stéttir.

„Hugmyndin um að sumir ‚standi undir sér‘ frábrugðið öðrum gengur ekki upp, því við treystum öll, óháð tekjum, á sameiginlega innviði, þjónustu og stuðning samfélagsins á ólíkum æviskeiðum.“

Hún varar við því að þegar fólk er flokkað sem „kostnaðar­liðir“ í stað íbúa, sé stutt í að ákvarðanir um þjónustu fari eingöngu að snúast um útgjöld en síður um samfélagslegt mikilvægi.

Mælikvarðinn á gott sveitarfélag

Að mati Sönnu er hlutverk sveitar­félaga ekki að handvelja arðbærustu íbúana, heldur að byggja upp samfélag þar sem fólk getur tilheyrt óháð aldri, tekjum eða félags­legum aðstæðum.

Hún dregur línu í sandinn hvað varðar gildismat í pólitík og segir að virði manneskju verði aldrei bundið við það hversu háa skatta hún greiðir.

„Virði sveitar­félagsins má hins vegar mæla út frá því hvernig það kemur fram við þann sem minnst hefur. Gott samfélag spyr ekki hverjir ‚standa undir sér‘ heldur hvernig við getum staðið saman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning