Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Aldrei hefði ég trúað svona framkomu af hálfu almennings á Íslandi“

Anna María lenti í leiðinlegu atviki

Almenningur á Íslandi
Almenn­ingur á Íslandi Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: BHJ

Anna María Sverris­dóttir, fyrr­verandi kennari, segist hafa orðið fyrir óvæntum og harka­legum viðbrögðum þegar hún gekk í hús í Reykjavík í vikunni og dreifði kynningar­efni fyrir Já-hreyfinguna vegna komandi þjóðar­atkvæða­greiðslu.

Baráttan milli fylkinga Já og Nei hefur færst í aukana eftir því sem nær dregur kosningum og hefur hún á köflum orðið óvægin og jafnvel ljót að mati sumra. Frásögn Önnu Maríu má líta á sem eina birtingar­mynd þeirrar hörku sem hefur einkennt loka­sprett kosninga­baráttunnar.

Anna María greinir frá reynslu sinni í færslu á Facebook undir yfir­skriftinni „Hvað kom eiginlega fyrir þetta samfélag?“

Hún segist hafa ákveðið að fara í göngutúr og dreifa einblöðungi með áletruninni „Já til að sjá“. Hún hafi gengið um fjórar götur í hverfi í borginni og sett bæklinginn í bréfa­lúgur.

Að sögn Önnu Maríu brugðust sumir íbúar illa við. Í tveimur tilvikum hafi húseigendur komið út og kallað á eftir henni að hún mætti hirða bæklinginn aftur. Í einu tilviki hafi verið hrópað að henni að hún væri „land­ráðamaður“ auk annarra ókvæðis­orða.

Viðbrögðin voru þó ekki öll neikvæð. Anna María segir að aðrir hafi þakkað henni fyrir eða brosað til hennar.

„Aldrei hefði ég trúað svona framkomu af hálfu almennings á Íslandi,“ skrifar hún.

Þjóðar­atkvæða­greiðslan fer fram næst­komandi laugardag. Mjótt hefur verið á munum milli fylkinganna í skoðana­könnunum. Já-hliðin hafði lengst af mælst rétt yfir Nei-hliðinni í könnunum, en í nýjustu könnuninni í gær snerist staðan við og Nei mældist örlítið stærra en Já.

Því stefnir í afar tvísýna kosningu og ljóst að loka­spretturinn verður mikil­vægur fyrir báðar fylkingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning