Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Féll niður 30 metra:„Við erum bara heppin að barnið okkar kom heim í framsæti bíls en ekki í kistu“

Þrettán ára drengur lifði af þrjátíu metra fall við Miklagljúfur í Arizona, Banda­ríkjunum.

Það tók björgunar­sveitir tvo klukku­tíma að bjarga Wyatt Kaufmann síðastliðinn fimmtudag, eftir að hann féll fram af brún North Rim í Mikla Gljúfri en það er vinsæll áninga­staður ferða­manna.

Flogið var með drenginn á sjúkahús með alvarleg meiðsl en hann hefur nú verið útskrifaður.

Wyatt sagði fjöl­miðlum að hann hefði fallið þegar hann var að víkja sér undan svo fólk gæti tekið ljós­myndir. Sagðist hann hafa beygt sig og haldið í grjót með annarri hendi en misst takið og byrjað að falla aftur á bak. „Ég man ekki eftir neinu eftir að ég féll,“ sagði hann sjónvarps­stöðinni KPNX í Phoenic, þar sem hann lá á spítala. „Ég man bara eftir að ranka við mér í sjúkrabíl og svo þyrlu og flugvél og svo var ég kominn hingað.“

Meðal meiðsla sem hann hlaut voru níu brotnir hryggjar­liðir, sprungið milta, handleggs­brot og saman­fallið lunga.

Tugir viðbragðs­aðilar tóku þátt í björguninni en Wyatt var komið í öruggt skjól af starfs­liði frá þjóð­garðinum í Miklagljúfri, sem kom sér niður klettinn þar sem Wyatt lá, eftir að í ljós kom að þyrlu­áhöfn gæti ekki komist að honum.

Faðir Wyatt, Brian Kaufman, sem var heima hjá sér í Norður-Dakota er slysið varð, sagði við fjölmiðla: „Við erum bara heppin að barnið okkar kom heim í framsæti bíls en ekki í kistu.“

Wyatt var staddur í fjöl­skylduferð til Miklagljúfurs þegar slysið varð en fjöl­skyldan sagði KPNX að hún ætlaði sér að fara í nýtt ferðalag (e. roadtrip) heim frá spítalanum, til að skapa nýjar minningar í staðinn fyrir minninguna um hið hræðilega fall.

Frétt þessi er unnin upp úr frétt BBC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár