Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fyrrum innflytjandi varar við innflytjendum

Ari Edwald var sjálfur innflytjandi í Portúgal fyrr á þessu ári

Ari Edwald
Ari Edwald Er odd­viti Mið­flokks­ins í Reykja­vík Mynd: Golli

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, varar við innflytjendum í myndbandi sem hann birti á samfélags­miðlum í gær.

Í mynd­bandinu, sem notast við streitu­valdandi undirspil, lýsir Ari því yfir að borgar­búar upplifi ekki sömu öryggis­tilfinningu og áður og segir að dæmum um grafal­varleg atvik fjölgi. Fylgja með skjáskot úr fréttum þar sem grunaðir gerendur eru erlendir. Bendir forstjórinn fyrr­verandi á innflytjenda­stefnu ríkisins sem sökudólg í þeim efnum. Hvetur Ari fólk til að kjósa Miðflokkinn í komandi sveitar­stjórnar­kosningum til að hægt sé koma þessum málum í lag í borginni.

Óhætt er að segja að myndband þetta hafi vakið mikla athygli á samfélags­miðlum eins og Facebook og TikTok.

„Verið hrædd! Vantreystið nágrönnum ykkar! Kjósið Miðflokkinn…“ skrifar blaða­maðurinn fyrr­verandi Atli Þór Fanndal um mynd­bandið.

„Hvað ætli Miðflokkurinn hyggist fyrir til að koma í veg fyrir að síðmiðaldra íslenskir áhrifa­karlar ógni öryggi kvenna í einka­samkvæmum eða á opinberum vettvangi?“ spyr Sóley Tómasdóttir, fyrr­verandi borgar­fulltrúi.

Halldór Auðnar Svansson, annar fyrr­verandi borgar­fulltrúi, skrifar: „Það á greini­lega að keyra bara á þessu fram að kosningum. Back to basics. Þegar upp er staðið snýst þessi flokkur um nákvæmlega ekkert annað en en skíta yfir innflytjendur. Ekkert uppbyggilegt, engar lausnir, bara neikvæðar tilfinningar og raus.“

Vekur mynd­bandið sérstak­lega mikla athygli í ljósi þess að Ari var sjálfur innflytjandi í Portúgal fyrr á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.
Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Pólitík

„Ég vil ekki mæta í fleiri jarðar­farir ungra manna“

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
  • Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

  • Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

  • Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

  • Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“