Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sökuðu verktakafyrirtæki að stela kristalsskálum og postulínsmunum

Á meðan fram­kvæmd­unum stóð leigði verktakinn jafnframt húsnæði af eigendum félagsins

Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sá um málið Mynd: Víkingur

Héraðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt B 2001 ehf. til að greiða Verk­þjónustu Sigurjóns slf. rúmar 337 þúsund krónur vegna aukaverka sem unnin voru við glugga- og hurða­skipti. Jafnframt var Verk­þjónustan sýknuð af 382 þúsund króna gagnkröfu félagsins vegna meintra skemmda og muna sem sagðir voru hafa horfið úr íbúð.

Málið á rætur að rekja til framkvæmda þar sem Verk­þjónusta Sigurjóns tók að sér glugga­skipti og glerjun á fasteign. Upphaflegt tilboð hljóðaði upp á rúmar 1,16 milljónir króna og tók til fjórtán glugga. Við framkvæmdirnar var einnig óskað eftir ísetningu tveggja hurða.

Verktakinn gaf síðar út reikning upp á 337.380 krónur vegna aukavinnu. B 2001 mótmælti reikningnum og taldi vinnuna meðal annars eiga að rúmast innan upphaf­lega tilboðsins.

Á meðan framkvæmdunum stóð leigði verktakinn jafnframt húsnæði af eigendum félagsins. Í tölvu­pósti í lok júlí 2024 kom fram samkomulag um að verktakinn greiddi 150 þúsund króna leigu gegn því að reikningurinn vegna auka­vinnunnar yrði greiddur. Dómurinn taldi tölvu­póstinn fullnægjandi sönnun þess að slíkt samkomulag hefði náðst.

Eftir að starfs­menn verktakans yfirgáfu húsnæðið hélt B 2001 því fram að ýmsir munir hefðu horfið, meðal annars handklæði, matvæli, kerta­stjakar, vasar, kristals­skálar og postulíns­munir. Þá var einnig haldið fram að blöndunar­tæki hefði skemmst. Félagið krafðist 382 þúsund króna í bætur.

Dómurinn taldi hins vegar að ekkert hefði verið lagt fram sem sýndi með fullnægjandi hætti fram á tjónið eða að umræddir munir hefðu yfirhöfuð verið í íbúðinni þegar starfs­menn verktakans höfðu hana til afnota. Gagn­kröfunni var því hafnað.

B 2001 var auk þess gert að greiða Verk­þjónustu Sigurjóns 630 þúsund krónur í máls­kostnað, auk höfuðstólsins og dráttar­vaxta frá 1. júlí 2024.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning