Sex einstaklingar voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær í tengslum við umfangsmikla rannsókn lögreglu á fíkniefnamisferli og peningaþvætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Lögregla réðst í viðamiklar aðgerðir á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknarinnar. Í aðgerðunum voru framkvæmdar húsleitir og nokkrir einstaklingar handteknir.
Jafnframt var lagt hald á bæði fíkniefni og fjármuni.
Sex þeirra sem handteknir voru voru í kjölfarið leiddir fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur, þar sem þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til föstudags. Samkvæmt tilkynningu lögreglu eru þeir allir íslenskir ríkisborgarar.
Lögregla segir rannsókn málsins mjög umfangsmikla. Ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir