Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Þórdís Sigurgeirsdóttir: „Komst í gegnum sorgina með því að lifa lífinu“

Þórdís Sigurgeirsdóttir
Þórdís Sig­ur­geirs­dóttir

„Það er bara svo skemmtilegt og gefandi að hræra í sálar­tetrinu og búa til karaktera; það er gaman að skapa karaktera frá grunni. Það er það sem er skemmtilegast. Það er líka gott að fá smáútrás og vera með fólki. Ég er frekar félags­lynd og það gefur mér mikið að vera innan um fólk,“ segir Þórdís Sigur­geirsdóttir sem hefur um árabil leikið með Leik­félagi Kópavogs sem hefur að undan­förnu sýnt leikritið Þjófar og lík.

Þórdís er spurð hvort henni finnist vera þægilegt að fara aðeins út fyrir rammann og vera þá einhver önnur en hún er sjálf. „Já, það er það svolítið. Það er áskorun að vera einhver annar en maður er sjálfur. Kannski er þetta líka sýniþörf að einhverju leyti. Maður stendur á sviðinu og sýnir sig. Það sama geri ég í vinnunni sem farar­stjóri; ég segi þá frá.“

Þórdís segir að leiklistar­áhuginn hafi kviknað snemma. „Ég var í leiklist í skóla og hef alltaf öðru hvoru verið viðriðin leiklist. Ég horfði mikið á leikið efni í sjón­varpinu – íslensk leikrit og myndir – og það var kannski það sem heillaði.“

Hana dreymdi um að verða leikkona og reyndi hún nokkrum sinnum í kringum tvítugsaldurinn að komast inn í Leiklistar­skóla Íslands. „Ég komst ekki í gegnum síuna frekar en margir aðrir sem hafa reynt við þá prófraun.“

Hún lék með Stúdenta­leikhúsinu í nokkur ár og svo byrjaði hún að æfa með Leik­félagi Kópavogs árið 2006.

Æfinga­tíma­bil eru yfir­leitt sex til átta vikur og er þá æft flest kvöld og um helgar.

„Við setjum alltaf upp allvega eina uppfærslu á hverju ári. Við byrjuðum að undirbúa Þjófa og lík í fyrra og svo byrjuðum við að æfa í lok ágúst. Æfinga­tímabil eru yfirleitt sex til átta vikur og er þá æft flest kvöld og um helgar. Það er algengt að sýningar séu átta til tíu. Leik­félagið á hús en þar sem sveitar­félögin á höfuð­borgar­svæðinu hafa ekki verið að styðja fjárhags­lega við bakið á áhuga­leikfélögum eins og var gert áður þá höfum við þurft að grípa til þess ráðs að leigja húsið út til að geta rekið það. Og það hefur þar af leiðandi áhrif á hve mikilli starfsemi við getum haldið úti sjálf.“

Úr sýn­ing­unni Þjófar og lík.

Kyrrðin

Hún er með BA-próf í dönsku og kennara­réttindi og fyrir utan að dreyma um að verða leikkona dreymdi hana um að verða leið­sögumaður. Það hefur hún gert í áratug.

„Ég hef bara gaman af að ferðast og ég hef gaman af nátt­úrunni. Og ég hef áhuga á að segja frá. Það er það sem hefur dregið mig í þetta.“

Hún er spurð um uppáhalds­göngu­leiðina. Uppáhalds­göngusvæðið. „Þau eru mörg en ætli ég nefni ekki helst Hengils­svæðið.“

Úti­vistin/hreyf­ingin, fal­leg nátt­úra/útsýnið og svo félags­skap­ur­inn/það að kynn­ast fólki.

Hvað er það besta við göngurnar? Hvað er það skemmtilegasta? Og hvað gefa göngurnar henni?

„Það er eins og með leik­listina: Að vera með fólki. Það er oftast það skemmtilegasta við göngurnar. Maður telur yfirleitt upp þrennt: Það er útivistin/hreyfingin, falleg náttúra/útsýnið og svo félags­skapurinn/það að kynnast fólki. Það á að að njóta en ekki þjóta. Njóta þess að vera úti í fallegri náttúru með öðru fólki. Það er kannski það sem gefur manni mest.“ Hún nefnir líka að komast úr skarkalanum og fara út í náttúruna svo sem upp á fjall. „Það er róandi. Það kannski auðveldar fólki að tæma hugann að vera í svoleiðis aðstæðum.“

Besta hljóðið er nátt­úr­lega kyrrðin.

Hvert er uppáhalds­blóm Þórdísar? Jú, það er þjóðar­blómið sjálft. Holta­sóleyin.

Hvað með uppáhalds­hljóðið? „Besta hljóðið er nátt­úrlega kyrrðin. Það er ákveðið hljóð. Svo er það fugla­söngurinn. Hann kryddar kyrrðina alltaf. Kannski er fugla­söngurinn uppáhalds­hljóðið.“

Með félögum í Veseni og ver­gangi.

Sorgin

Þórdís er ekkja og tveggja barna móðir. Talið berst að sorginni. Dauðanum. Fyrir utan að hafa misst manninn sinn hefur hún misst föður sinn og bróður. Hún segir að það sé misjafnt hvernig fólk tekst á við sorgina.

„Þetta hljómar svolítið klént en lífið hefur áfram og mér hefur tekist að komast í gegnum sorgina með því að lifa lífinu eins og ég gerði áður og minnast viðkomandi með hlýju. Þegar ég missti manninn minn þá leið einn og hálfur mánuður þar til ég var farin að æfa farsa með leik­félaginu. Ég held að það hafi haft svolítið að segja að þetta var farsi. Það hjálpaði mér mjög mikið að aðeins að flippa út og lifa lífinu lifandi eins og fólk segir.“

Þórdís segist horfa á lífið með öðrum augum en áður.

„Maður veit aldrei hvenær tíminn kemur. Þetta kennir manni kannski það að njóta lífsins á meðan það er. Maður veit aldrei sjálfur hvenær maður fer.“

Hvenær kallið kemur.

Það er aldrei of seint að byrja.

„Ef fólk langar til að gera eitthað þá á það að kýla á það. Ef einhverjum dettur í hug að fara í kór, í leikfélag eða út að ganga þá er bara um að gera að drífa sig. Það er aldrei of seint að byrja.“

Á Bald­heiði á Kili 2018.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning