Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Tók upp hanskann fyrir lögregluna en hlaut bágt fyrir: „Bara að benda á að löggur eru líka fólk“

Jón Gnarr Mynd / Facebook
Jón Gnarr Mynd / Facebook

Jón Gnarr sem vart þarf að kynna, tók upp upp hanskann fyrir lögreglu­menn Íslands á Twitter í gær og reyndi þannig að hefja samtal. En fylgjendur hans brugðust heldur illa við pælingar grín­istans, sem ólst upp sem sonur lögreglu­manns.

„veit að löggan er kannski ekki vinsælasta starfs­stéttin í dag en það fer alltaf jafnmikið í taugarnar á mér þegar pólitíkusar reyna að klína klúðri á almennt lögreglu­fólk sem þarf að vinna ömurleg skítverk fyrir sömu pólitíkusa. löggan er armur laganna en pólitíkusar heilinn,“ skrifaði Jón og átti þá við þá reiðiöldu sem flætt hefur um samfélags­miðlana eftir að lögreglan, að beiðni dómsmála­ráðuneytis Jóns Gunnars­sonar, handtók og flutti hælis­leitendur til Grikk­lands í skjóli næturs.

„Lögreglu­fólk hefur frjálst val, en þau kjósa að gera þetta. Já, ríkis­stjórnin er ábyrg en lögreglan líka,“ skrifaði Elín nokkur og svaraði Jón um hæl:

„við erum auðvitað ekki að finna upp hjólið með það. við erum með ljót og ósann­gjörn lög en þér finnst það í lagi svo framarlega sem löggtan framkvæmir þau af kurteisi og fagmennsku ? mér finnst það ekki“

Sveinn nokkur skrifaði eftir­farandi svar: „Skv. siða­reglum lögreglu­manna mega þeir, nei eiga þeir, að hafna að fram­fylgja skipunum sem stríða gegn siðferði þeirra. Lögreglan er ekki saklaus og ekki lögreglu­menn heldur virkir þátt­takendur.“

Næsta færsla Gnarrs hljóðaði eftir­farandi:

„að pönkast í löggunni fyrir að fram­fylgja lögum, sem er beisikklí starfs­lýsingin þeirra, (lög-reglan) er svipað og að hrauna yfir kennara útaf aðal­námskrá eða skamma sjúkra­liða vegna lyfja­gjafar eða hengja bakara fyrir smið“

Óli nokkur svaraði að bragði: „Það hefur enginn sjúkra­liði spreyjað piparúða í augun á mér til að koma í veg fyrir að ég gæti tekið upp myndband af öðrum sjúkra­liðum að sparka í liggjandi mann.“

„þetta eru hártoganir. löggan fær ekki piparúða til að spreyja framan í þig á ebay. það er e-r sem tekur þá ákvörðun að ef að lögga metur það svo, að henni stafi hætta af Óla, þá megi hún spreyja ákveðinni pipar­blöndu, sem er samþykkt, framan í Óla,“ svaraði Jón þá.

Einn fylgjandi Jóns skýtur á grín­istann:
„Uuuuu þú áttar þig á því að heimurinn ákvað í sameiningu fyrir að verða 80 árum að Nurembergar vörnin væri ekki gild vörn.“

Jón, sem á þessum tíma­punkti virðist orðinn þreyttur, svaraði: „bara að benda á að löggur eru líka fólk“

Þegar þarna var komið við sögu voru svörin sem bárust Jóni farin að hitna heilmikið:

„Einu sinni varstu en núna veit enginn hvað í fjandanum þú ert. ‘Starfs­mönnum lögreglu er skylt að hlýða löglegum fyrir­skipunum yfirmanna um störf sín og fylgja þeim eftir af trúmennsku, svo framarlega að þau brjóti ekki alvarlega gegn siðferðis­kennd hans.’“

Þá birti einhver samsetta ljósmynd af Jóni sleikja lögreglu­stígvél en Jón hrósaði viðkomandi fyrir flotta mynd.

Wilhelm var smekk­legur eða hitt þó heldur en hann birti mynd af hermönnum í Norður Kóreu og skrifaði til Jóns: „En þú fílar lögregluna í Norður-Kóreu, ekki satt?“

Mun fleiri skrifuðu athuga­semdir og að lokum skrifaði Jón nýja færslu:

„Slakiði svo aðeins á krakkar. Bjarni er ennþá formaður og mun sigla okkur öllum, styrkum höndum og heilum í höfn í Garða­torgi framtíðar­landsins! Þetta reddast allt saman“

Bætir hann svo við: „að vera lögga er erfiðasta starf á Íslandi. hver vakt er óvissu­ferð og þú þarft að ganga inní aðstæður og sjá hluti sem engin manneskja ætti að þurfa að sjá. þunglyndi og kvíði er hluti af starfinu, sjálfsvígs­tíðnin er ein hæsta meðal starfs­stétta. og úrræði eru takmörkuð“

Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur svaraði þeirri færslu:

„En er þetta endilega ósamræmanlegt hinu að bæði misbeiti lögreglan oft valdi sínu og beiti fólk óþarfa ofbeldi, og að hún framkvæmi oft fyrir­skipaðan skepnu­skap sem væri kannski ágætt að hún sleppti (og hefur rétt til að sleppa skv. lögum)?“

Því svaraði Jón að bragð:

„jú, það er hárrétt. nýafstaðnar aðgerðir löggunnar gegn fötluðum manni og skóla­börnum sanna það. en við erum með harkalegt kerfi og ábyrgðar­lausa stjórn­endur. það tel ég rót vandans. bara sama og CRASS bentu á in the 80’s. vanda­málið er Thatcher en ekki kall í löggu­búningi“

Fleiri leggja orð í belg en að lokum játar Jón sig sigraðan með færslu sem hljóðaði svo:

„hatrið gegn löggunni er svo mikið að ef einhver reynir að taka upp hanskann fyrir almennar löggur og benda á að þetta er bara fólk sem er að vinna hræðilega erfitt starf verður viðkomandi tekinn niður með öllum ráðum því heiftin skal ráða för“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning