Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Guðrún Eva segir þjáningu hafa tilgang: „Sorgin gleymir engum“

Guðrún Eva Mínervudóttir.
Guðrún Eva Mínervu­dóttir.

Guðrún Eva Mínervu­dóttir rithöfundur birtir á Facebook-síðu sinni hugvekju sem hún flutti á aðventu­kvöldi í Hvera­gerðis­kirkju. Hugvekjan virðist snerta einhverja taug hjá lands­mönnum því hún hefur vakið mikil viðbrögð á samfélags­miðlum. Hugvekjuna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan en þar ræðir Guðrún Eva um það hvernig þjáning og mótlæti sé ekki með öllu neikvætt. Með því að ganga í gegnum áföll þá aukist meðal annars samkennd fólks með öðrum.

Hugvekja á aðventu­kvöldi í Hvera­gerðis­kirkju:

Eitt er það sem ég hef varið mestallri ævinni í að reyna að tileinka mér. Og það er: Að treysta lífinu. Jafn fífl­djarft og það kannski hljómar. Og mótsagna­kennt. Lífið er jú algert ólíkindatól, fullkomlega óútreiknanlegt. Hér er ekkert öruggt annað en breytingar (stundum óvelkomnar), hrörnun og dauði.

Ef það væri létt og sjálfsagt að treysta lífinu tæki því kannski ekki að tala um það. Ég þarf ekki að útlista allar þær hörmungar sem geta dunið á einni manneskju. Allt sem hægt er að fara á mis við. Við erum óvarin fyrir sorgum heimsins og fáum öll okkar skerf. Vonbrigði eru sjálf­gefinn hluti af lífinu. Sárs­aukinn óumflýjanlegt hlut­skipti okkar. Stundum finnst mér jafnvel að helsta og eina öryggið sé fólgið í tilhugsuninni um dauðann; að hann muni á endanum bjarga okkur öllum úr þessum, að mörgu leyti fagra, en um leið stór­hættulega, táradal. En ég veit ekki hvort það má tala með þessum hætti þótt um sjálfsagða hluti sé að ræða og nú skal ég reyna að koma mér að efninu: Nefnilega því sem ekki er sjálfsagt. Og það er: Að lífinu er treystandi fyrir því sem máli skiptir. Við getum alveg treyst því að reynslan færi okkur, á hverju einasta andartaki, tækifæri til að vaxa og vitkast.

Mér finnst góður ávani þegar eitthvað ónotalegt eða óæskilegt gerist að spyrja þeirrar klassísku spurningar: „What´s in it for me?“ Hvað græði ég á þessu? Í merkingunni: Hvaða andlega lærdóm er lífið að færa mér? Þetta hljómar kannski eigin­gjarnt, en þannig er það bara ef við lítum á innri vöxt sem einkamál hvers og eins.

En útvíkkun hugans og stækkun hjartans er ekki okkar einkamál heldur eitthvað sem hefur áhrif langt út fyrir sig. Ef við munum að við erum verkfæri til góðs í heiminum þá má segja að okkur beri beinlínis að brýna okkur og eflast. Og ef þjáningin þjónar okkur með því til dæmis að tálga af okkur hégómann og dýpka samkenndina þjónar hún heiminum líka.

Nú vil ég ekki meina að við vöxum eingöngu í gegnum þjáningu, alls ekki. En sumur skilningur virðist ekki í boði nema gegn gjaldi sem greiðist með mótlæti, mistökum eða missi. Er ég þá að upphefja þjáninguna? Nei. Bara að segja að hún sé ekki til einskis. Að hún þjóni sínum tilgangi. Að þótt þjáning valdi stundum meiri þjáningu (sært fólk eigi það til að særa fólk og skaðleg mynstur húkki sér far með kynslóðunum og allt það) sé sumt sem við getum ekki skilið til fulls nema hafa gengið í gegnum erfiða hluti.

Okkur er sagt að sýna góðvild og umburðar­lyndi því við vitum ekki hvað næsti maður hefur þurft að ganga í gegnum. En eiginlega getum við einmitt gert ráð fyrir að flestar manneskjur sem við mætum eigi sína mis-hrikalegu áfalla­sögu. Sorgin gleymir engum.

Tækist einhverjum að sleppa ódýrt frá þessu öllu, svona reynslu­lega séð, myndi mögulega vanta eitthvað. Andlega rýmis­greind. Meðvitund um berskjöldun og hverful­leika. Skilning á að fólk geti verið bogið, snúið, bælt og laskað af áföllum en stærra og dýpra fyrir vikið.

Of mikið sakleysi er ekki hlut­skipti sem ég óska mér til handa. Þó svo að reynslan geti verið dýru verði keypt. Sakleysi er ofmetin tegund manngæsku. Ég vil vita. Ég vil skilja. Ég er fegin því að geta horft í augu annarra og sagt: ég veit, ég skil, ég líka.

En svo er hitt að miðað við hvað lífið er háskalegt er merkilega mikil velsæld í gangi. Fólk er að mestu leyti gott hvert við annað. Við hjálpumst að. Við látum í okkur heyra frammi fyrir óréttlæti. Þegar eitthvert okkar er knésett af erfið­leikum streymir fólk fram til stuðnings. Ég veit að sumir hafa aðra sögu að segja, en langoftast er þetta svona.

Það er líka merkilega margt sem bara virkar. Og sérlega margt sem gæti farið úrskeiðis en gerir það ekki. Við getum verið sammála um að flestar hvers­daglegar áhyggjur okkar séu óþarfar. Hlutirnir sleppa vanalega fyrir horn, mál eiga það til að reddast, það greiðist úr flækjum, vesen og drama líða hjá.

Það fyndnasta við lífið finnst mér kannski að við virðumst ekki hafa hugmynd um hvað okkur er fyrir bestu. Eða kannski er það bara ég. Í það minnsta verð ég vör við að margt af því sem ég óttaðist og harmaði reyndist þegar upp var staðið mín mesta gæfa. Og sumar óskir sem fengust uppfylltar urðu mér fjötur um fót.

Ef ég gæti bara alltaf munað þetta, væri líf mitt ólíkt notalegra. Ég er nefnilega alls ekki „með þetta“. Þó svo að heita eigi að ég „viti“ allt þetta sem ég var að enda við að útlista er ég stundum illa haldin af kvíða, meira og minna alltaf í viðbragðs­stöðu og hef helling af óþörfum áhyggjum. Það sem gerir þetta allt bærilegt er andleg næring, innbyrt með öllum skilningar­vitum, tengslin við vini — þessa heims og annars — og síðast en ekki síst innra samtalið sem er að mestu leyti uppbyggilegt og hughreystandi.

Viðbragðs­staðan er alveg örugglega afleiðing af áföllum en bjarti tónninn í innra samtalinu er líka til kominn af reynslu. Þessu sem ég veit vegna þess að ég hef upplifað það. Vegna þess þrátt fyrir áföllin og viðbragðs­stöðuna hefur reynslan kennt mér að treysta lífinu. Svo mótsagna­kennt. Ég veit. Ekkert við því að gera. Njótum aðventunnar, kæru vinir. Kveikjum ljós í myrkrinu. Eða kveikjum í myrkrinu, bara. Nei, smá grín. Berum virðingu fyrir háskanum og elskum myrkrið því það er bara týnt og einmana. Lýsum upp tilveruna með því að halda áfram að hjálpa hvert öðru, styðja, hvetja og hlúa að. Það er tilgangur lífsins. Og við stöndum okkur alveg ágætlega. Því eitt er alveg öruggt mál í mínum huga: Að allir eru alltaf að gera sitt besta. Ef við gætum gert betur þá myndum við gera það! Megi gleðin og samkenndin umvefja okkur. Núna og alltaf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning