Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Lætur eldræður Sigurðar og séra Davíðs pirra sig: „Sjálfsagt er hægt að lesa texta með tilþrifum“

Davíð Þór Jónsson
Davíð Þór Jónsson

Brynjar Níelsson lætur eldræður tveggja stjórn­mála­and­stæð­inga sinna fara í taug­arnar á sér.

Lög­mað­ur­inn Brynjar Níelsson skrif­aði Facebook-færslu í gær þar sem hann agn­ú­ast út í tvær ræður sem vakið hafa athygli nýverið. Annars vegar lét hann eldræðu Sigurðar Inga Jóhanns­son um inn­flytj­endur í þætti RÚV þar sem rætt var við for­menn flokk­anna sem bjóða sig fram til Alþingis í kom­andi kosn­ingum. Hin ræðan sem pirraði Brynjar, sem er fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var eldræða séra Davíðs Þórs Jóns­sonar í Silfrinu á dög­unum, sem sló heldur betur í gegn, enda má segja að hann hafi rass­skellt Sjálf­stæð­is­menn í tali sínu um heil­brigð­is­kerfið og van­hæfni sem hann sagði Sjálf­stæð­is­menn ekki vita hvað er. Færsla Brynjars byrjar á eft­ir­far­andi hátt:

„Orðið „eldræða“ virð­ist hafa fengið alveg nýja merk­ingu í fjöl­miðlum. Tvær „eldræður“ voru í fréttum í vik­unni, ann­ars vegar eldræða for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins um útlend­inga­mál á RÚV og síðan eldræða séra Davíðs í Silfrinu um fólk sem stæði höllum fæti.

Fullyrða má að aldrei fyrr hafa verið haldin eldræða með því að lesa úr síma í sjón­varps­sal texta eftir annan, sem þar að auki þekkti greini­lega lítið sem ekk­ert til mála­flokks­ins og graut­aði óskyldum hlutum saman. Sjálf­sagt er hægt að lesa texta með til­þrifum en inni­haldið þarf að vera þokka­legt svo hægt sé að tala um eldræðu.“

Í seinni hluta færsl­unnar líkir Brynjar séra Davíð Þór við Maó Tse-Tung, fyrr­ver­andi for­mann Alþýðu­veld­is­ins Kína og aðra komm­ún­ista, og segir hann enga umhyggju hafa fyrir fátækum og virð­ist þannig gleyma að Davíð Þór er prestur.

„Marg­fluttar ræður eru alla jafna ekki eldræður. Eldræðu prests­ins höfum við sem eldri erum heyrt áður frá aðal­rit­urum og odd­vitum sós­íal­ískra flokka. Sumir þeirra komust til valda og skrif­uðu rauð kver með þessum texta. Enginn þeirra reynd­ist hafa nokkurn áhuga á öðru fólki, hvorki fátækum né öðrum, enda skipti ein­stak­ling­ur­inn engu í þeirra póli­tík. Arfleifð þeirra allra var efna­hags­legt og sam­fé­lags­legt hrun. Það er því mjög merki­legt að á 21. öld­inni skuli enn vera til lang­skóla­gengnir menn sem boða þessa póli­tík og halda að hún bæti kjör nokk­urs manns. Þessi póli­tík hefur ekk­ert með umhyggju fyrir fátækum að gera heldur miklu frekar andúð á frels­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið